27. september, 2023

Vilt þú taka þátt í starfsemi nefnda Stúdentaráðs?

Kæru stúdentar!

Nefndir Stúdentaráðs eru í leit að sínum fimmta meðlimi til að ganga til liðs við sig. Um er að ræða alþjóðanefnd, félagslífs- og menningarnefnd, fjölskyldunefnd, umhverfis- og samgöngunefnd, lagabreytinganefnd og fjármála- og atvinnulífsnefnd.

Í umsókninni skal taka fram stutta kynningu á umsækjanda og fyrri reynslu sem gæti nýst í nefndinni, námsleið umsækjanda og hvers vegna hann telur sig eiga heima í nefndinni. Umsóknir skulu berast á netfangið shi@hi.is. Umsóknarfrestur í allar nefndirnar er til 23:59 þann 8. október 2023.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir starfsemi nefndanna, en frekari upplýsingar má einnig finna á heimasíðu Stúdentaráðs.

 

Félagslífs- og menningarnefnd

Verkefni nefndarinnar eru margvísleg en hún sér um skipulagningu, framkvæmd og utanumhald á hinum ýmsu viðburðum innan Háskóla Íslands, t.d. viðburði í tengslum við Októberfest SHÍ, Fyndnasta háskólanemann og Partybingó. Nefndin leggur mikið upp úr því að gleðja samstúdenta, með góðum móral, flippi og samheldni stúdenta HÍ.

 

Fjármála- og atvinnulífsnefnd

Nefndin tekur til meðferðar atvinnumál stúdenta auk tengsla þeirra við atvinnulífið. Markmið nefndarinnar er að skapa mikilvæga tengingu stúdenta við atvinnulífið, tengingu sem helst til framtíðar.

 

Lagabreytinganefnd

Lagabreytinganefnd SHÍ gætir þess að lagabreytingatillögur stúdentaráðsliða séu í samræmi við heildarendurskoðun.

 

Alþjóðanefnd

Alþjóðanefnd tekur til meðferðar mál er varða hagsmuni erlendra stúdenta við HÍ og mál íslenskra stúdenta erlendis. Hún heldur einnig utan um tengiliðaverkefni sem gefur íslenskum nemendum og erlendum skiptinemum færi á að kynnast. Nefndin vinnur í samstarfi við skrifstofu alþjóðasamskipta Háskóla Íslands. 

 

Umhverfis- og samgöngunefnd

Umhverfis- og samgöngunefnd Stúdentaráðs sinnir umhverfismálum samanber endurvinnslu, sjálfbærnisstefnu Háskóla Íslands, samgöngumálum og skipulagsmálum tengdum háskólasvæðinu og byggingum FS. Nefndin hefur það að markmiði að auka umhverfisvitund stúdenta með ýmsum viðburðum innan háskólans.

 

Fjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd vinnur að almennri hagsmunabaráttu fjölskyldufólks við HÍ og markmið nefndarinnar er að styðja sem best við stúdenta sem eiga börn svo þau geti sinnt bæði námi og fjölskyldulífi. Nefndin skipuleggur fjölmarga fjölskylduvæna viðburði, svo sem Íþróttaskóla SHÍ og Fjölskylduhátíð SHÍ í tengslum við Októberfest svo eitthvað sé nefnt.

Deila

facebook icon
linkedin icon