17. nóvember, 2026
Stúdentaráð hlaut styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir verkefnið Iceland 101
Þann 11. nóvember síðastliðinn tóku Cynthia Anne Namugambe, alþjóðafulltrúi SHÍ, og Katla Ólafsdóttir, forseti SHÍ, við þriggja milljón króna styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir verkefnið Iceland 101 – International Student Transition Programme. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húnæðismálaráðherra, veitti fulltrúum SHÍ styrkinn formlega á morgunverðarfundi Innflytjendaráðs.
Verkefnið Iceland 101 – International Student Transition Programme snýr að því að auðvelda alþjóðanemum fyrstu skrefin í íslensku samfélagi, bæta aðgengi að upplýsingum og efla félagsleg tengsl þeirra. Verkefnið verður unnið í samstarfi við Háskóla Íslands og Sprett.
Við þökkum Innflytjendaráði fyrir góðan morgunverðarfund og Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir styrkinn.