11. nóvember, 2026
Yfirlýsing SHÍ vegna skólagjalda fyrir nemendur utan EES
Stúdentaráð Háskóla Íslands lýsir yfir verulegum áhyggjum af skólagjöldum fyrir nemendur utan EES er tilkynnt voru nýverið og taka gildi skólaárið 2027-2028. Gjaldtakan er tilkomin í kjölfar frumvarps háskólaráðherra um breytingar á lögum um opinbera háskóla og vegna tilvonandi samhliða breytinga á reglum um fjárframlög til háskóla. Þar er ætlunin að nemendum utan EES fylgi ekki lengur ríkisfjármagn til niðurgreiðslu námskostnaðar.
Stúdentaráð Háskóla Íslands krefst þess að háskólaráðuneytið veiti háskólanum nægilegt fjármagn til niðurfellingar skólagjalda nemenda með ríkisfang utan EES fyrir námsleiðir sem ýmist skapa háskólanum sérstöðu, eru íslensku samfélagi nauðsynlegar eða eru í verulegri hættu á að tapa rekstrargrundvelli sínum. Þá er brýnt að ráðuneytið samræmi aðgerðir sínar við hin Norðurlöndin og geri einstaklinga með tímabundið dvalarleyfi sem leitt getur til ótímabundins dvalarleyfis undanþegna gjöldunum.
Vegna stórfelldrar kjaraskerðingar fyrir stóran hóp nemenda við Háskóla Íslands er gríðarlega mikilvægt að vel sé staðið að framkvæmd málsins.
Tilgangur laganna og tilætlaðar mótvægisaðgerðir
Í greinargerð lagafrumvarpsins kemur tilgangur þess og tilætlaður árangur skýrt fram: „Tilefni lagasetningarinnar er stóraukinn fjöldi umsókna erlendra nemenda í háskóla á Íslandi undanfarin ár. Í skýrslu OECD um íslenskt efnahagslíf frá árinu 2023 eru íslensk stjórnvöld til að mynda hvött til þess að taka upp skólagjöld fyrir nemendur utan EES í samræmi við það sem gert er annars staðar á Norðurlöndum sem lið í því að laða að fleiri hámenntaða einstaklinga sem eru tilbúnir að borga skólagjöld í háskóla frekar en minna eða lítið menntaða einstaklinga.“
Þá er áréttað að nái frumvarpið fram að ganga verður háskólum veitt heimild í reglum nr. 755/2024 til að ákveða skilyrði fyrir niðurfellingu skólagjalda erlendra nemenda með ríkisfang utan EES í samræmi við reglur sem þeir setja. Enda segir þar síðar að „Þrátt fyrir [ágóða gjaldanna] er almennt viðurkennt að fjölbreytileiki í háskólum sé af hinu góða fyrir það starf sem þar fer fram. Því sé mikilvægt að tryggja að styrkir til greiðslu skólagjalda standi framúrskarandi nemendum til boða.“
Þá kemur fram í nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar að það „skipti máli að tryggja gott orðspor íslenskra háskóla á alþjóðlegum vettvangi og laða að áhugasama nemendur og hæfileikaríka kennara. […] Er í því samhengi horft til þess hvernig reglur um skólagjöld hafa verið útfærðar annars staðar á Norðurlöndum og með hvaða hætti er leitast við að viðhalda stöðugu hlutfalli erlendra nemenda með styrkjum eða niðurfellingu skólagjalda. Upptaka skólagjalda á Norðurlöndum miðar að því að jafna samkeppnisstöðu háskóla á alþjóðlegum vettvangi og tryggja fjármögnun þeirra en jafnframt að viðurkenna mikilvægi alþjóðlegra nemenda, m.a. með styrkjakerfi til að draga úr neikvæðum áhrifum á aðgengi þeirra. Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til þess í kafla um mat á áhrifum að gera megi ráð fyrir því að nemendum utan EES við íslenska háskóla kunni að fækka fyrst um sinn, verði frumvarpið að lögum. Þá kunni einhverjar námsleiðir við skólana að tapa rekstrargrundvelli sínum til skamms tíma en hægt verði að bregðast við þeirri stöðu með útfærslu undantekninga í reglum um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024, og heimild háskóla til að fella niður skólagjöld í samræmi við reglur sem háskóli setur. Meiri hlutinn áréttar að fyrirhugað er, nái frumvarpið fram að ganga, að gera samhliða breytingar á reglum um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024, þannig að fjármagn fylgi aðeins nemendum með ríkisfang frá landi innan EES, Sviss, Færeyjum og Grænlandi, eða einstökum námsleiðum samkvæmt ákvörðun ráðherra. Þá væntir meiri hlutinn þess að nánar verði útfært í reglunum í hvaða tilvikum verði heimilt að undanþiggja tiltekna erlenda nemendur gjaldtöku, sem ekki fylgir fjárframlag, eftir atvikum á grundvelli einstakra námsleiða, alþjóðlegs samstarfs eða tengsla við landið.“
Líkt og skýrt kemur fram, bæði í greinargerð og nefndaráliti, þá er frá byrjun lagt upp með að áformunum fylgi undanþágur í ákveðnum greinum háskólans. Enda séu þær háskólanum, sem og íslensku samfélagi, mikilvægar. Þá er mikilvægt að hafa það til hliðsjónar að tilætluð heimild til undanþága virðist forsenda þess að frumvarpið hafi farið úr allsherjar- og menntamálanefnd án athugasemda.
Ósamræmi útfærslu við samþykkt áform
Í núverandi áformum, samkvæmt nýjustu upplýsingum, kveður hins vegar ekkert á um undanþágur ákveðinna námsleiða. Þá er sömuleiðis ekki kveðið á um undanþágur fyrir handhafa tímabundinna dvalarleyfa sem hafa grundvöll til ótímabundinna dvalarleyfa, líkt og lagt var upp með bæði samkvæmt gögnum máls og þeim upplýsingum sem miðlað var til háskólans við úrvinnslu þess. Þó eru undanþágur slíkra dvalarleyfa í samsvarandi lagasetningum í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð, en það er einmitt gegnumgangandi í máli þessu að miðað sé að því að samræma útfærsluna hérlendis við hin Norðurlöndin.
Samkvæmt upplýsingum Stúdentaráðs verða ekki veittar undanþágur til ákveðinna námsleiða heldur verður stofnaður sérstakur kvóti fyrir niðurfellingu skólagjalda sem dreift verður milli háskólanna hlutfallslega. Háskólarnir bera ábyrgð á að ráðstafa kvótanum en tilætluð stærð hans er óviðunandi og engan veginn fullnægjandi til að viðhalda mikilvægum námsleiðum. Því má leiða líkur að því að námsleiðir sem samanstanda að miklu leyti af nemendum utan EES verði lagðar niður.
Þegar Noregur innleiddi skólagjöld fyrir nemendur utan EES árið 2023, þar sem undanþágur voru þrengri en á hinum Norðurlöndunum, fækkaði nýskráðum nemendum úr þeim hópi um 80%. Tekjur af gjöldunum urðu minni en áætlað var og háskólarnir þurftu að skera niður. Í júní 2025 var því horfið frá þessari stefnu og felld úr gildi sú krafa að háskólar innheimtu skólagjöld sem stæðu undir öllum námskostnaði. Þess í stað fengu háskólarnir aukið svigrúm til að ákveða skólagjöld sín sjálfir.
Undarlegt verður að teljast að íslensk stjórnvöld virðast fremur líta til upphaflegu útfærslunnar í Noregi en til útfærslna hinna Norðurlandanna, þegar norska útfærslan er sú sem skilað hefur verstum árangri og þegar er farið að vinda af.
Við framkvæmd áformanna hérlendis þarf þróun málsins í Noregi að liggja að grundvelli. Háskólaráðherra hefur sjálfur bent á að fjármögnun íslenska háskólastigsins sé töluvert lægri en annars staðar á Norðurlöndunum. Fyrir lítið háskólasamfélag sem þarf að laða að alþjóðlega nemendur og fræðafólk skiptir þessi áhætta verulegu máli. Há skólagjöld munu ráða úrslitum um hvort alþjóðlegir nemendur velji HÍ eða leiti annað. Óumflýjanleg fækkun þeirra mun veikja stöðu háskólans í stað þess að styrkja hana líkt og norska stúdentahreyfingin (NSO) benti ítrekað á í framgangi málsins þarlendis og reyndist sannspá. Í lagabreytingartillögu 58 L er lögð var fyrir norska þingið í vor og miðaði að því að draga úr neikvæðum áhrifum er stöfuðu af lagasetningunni segir: „Flestir umsagnaraðilar voru sammála um að innleiðing skólagjalda hefði gert Noreg að síður aðlaðandi áfangastað fyrir nemendur frá ríkjum utan EES og að nokkrir háskólar og háskólastofnanir hefðu þar af leiðandi misst fjölbreytileika og mikilvæga þekkingu og færni.“ Lagabreytingartillagan var lögfest í júní.
Í greinargerð frumvarps háskólaráðherra hérlendis var viðurkennt að nákvæmt fjárhagsmat lægi ekki fyrir og að einhverjar námsleiðir gætu tapað rekstrargrundvelli sínum. Stúdentaráð telur slíkri áhættu þurfa að fylgja afdráttarlausar varúðarráðstafanir. Almennar væntingar um nýjar tekjur sem byggja á gögnum er þegar hefur verið hnekkt á nægja ekki þegar framtíð námsleiða er í húfi.
Innan íslenska háskólakerfisins stunda þrír fjórðu nemenda utan EES nám við Háskóla Íslands. Breytt dreifing opinberra framlaga kemur því sérstaklega illa niður á Háskóla Íslands. HÍ varaði jafnframt við því að ekki væri hægt að gera ráð fyrir að tekjur af skólagjöldum stæðu undir kostnaði ef aðsókn drægist verulega saman og fjármagn dreifðist frekar til annarra háskóla.
Fyrir fámennar og sérhæfðar námsleiðir getur fækkun um fáa nemendur skipt sköpum. Verði kennsla lögð niður eða veikist sérfræðiþekking verður tjónið ekki léttilega bætt með síðari fjárveitingum. Það tekur langan tíma að byggja upp kennarahópa, rannsóknasamstarf og alþjóðlegt tengslanet. Stúdentaráð telur óforsvaranlegt að stefna slíkum verðmætum í hættu án þess að áhrifin séu gaumgæfilega metin og áframhaldandi starfsemi tryggð.
Þá er vert að líta sérstaklega til námsleiðarinnar íslensku sem annað mál, enda er hún burðarás fyrir inngildingu innflytjenda í íslenskt samfélag og allar aðgerðir til veikingar hennar ganga í berhögg við stefnu stjórnvalda í málaflokknum.
Það er ósamræmanlegt að gera auknar kröfur um íslenskukunnáttu og þátttöku innflytjenda en reisa um leið gífurlegar fjárhagslegar hindranir fyrir því námi sem gerir fólki kleift að uppfylla þær kröfur. Stjórnvöld verða að tryggja að aðgerðir í fjármögnun háskólanna vinni ekki gegn markmiðum um eflingu íslenskunnar og inngildingu.
Kröfur til háskólaráðherra
Stúdentaráð Háskóla Íslands krefst þess að háskólaráðuneytið falli aftur að tilætluðum áformum er lögð voru til grundvallar í afgreiðslu málsins á Alþingi. Það er óásættanlegt að framkvæmd málsins taki breytingum með svo afgerandi hætti eftir afgreiðslu frumvarpsins.
Háskólaráðuneytið þarf að standa við orð sín og veita háskólanum nægilegt fjármagn til niðurfellingar skólagjalda nemenda með ríkisfang utan EES fyrir námsleiðir sem ýmist skapa háskólanum sérstöðu, eru íslensku samfélagi nauðsynlegar eða eru í verulegri hættu á að tapa rekstrargrundvelli sínum. Þá er brýnt að ráðuneytið samræmi aðgerðir sínar við hin Norðurlöndin og geri einstaklinga með tímabundið dvalarleyfi sem leitt getur til ótímabundins dvalarleyfis undanþegna gjöldunum.
Mikilvægt er að háskólaráðherra hlusti á áhyggjur stúdenta í máli þessu, eða eins og hann komst sjálfur að orði í innsendri skoðanagrein á Vísi árið 2019: „Hlustum á ungt fólk og tökum þátt í því að tryggja þá framtíð sem það kallar eftir. Byggjum upp betra, opnara, frjálsara, grænna og alþjóðlegra samfélag.“