11. nóvember, 2026
Fulltrúar SHÍ funduðu með menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu
Í gær, 10. nóvember, áttu Katla Ólafsdóttir, forseti SHÍ, Kjartan Helgi Guðmundsson, varaforseti SHÍ, Cynthia Anne Namugambe, alþjóðafulltrúi SHÍ, og Mathias Bragi Niiuchi Nilsen Ölvisson, framkvæmdastjóri SHÍ (tók mynd), fund með Höllu Jónsdóttur, aðstoðarmanni háskólaráðherra, Jóni Vilbergi Guðjónssyni, skrifstofustjóra skrifstofu háskóla og vísinda í háskólaráðuneytinu, og Mörtu Maríu Halldórsdóttur, sérfræðingi ráðuneytisins. Fundurinn var skipulagður í kjölfar fyrri fundar með Loga Má Einarssyni háskólaráðherra þar sem skólagjöldin voru rædd og hafði SHÍ sent stefnu sína til aðstoðarmanns ráðherra eftir þann fund og ítrekað athugasemdir sínar.
Á fundinum komu fulltrúar SHÍ áhyggjum sínum á framfæri varðandi framkvæmd innleiðingar skólagjalda fyrir háskólanema frá ríkjum utan EES/EFTA, Grænlands og Færeyja. Þau ítrekuðu jafnframt mikilvægi þess að undanþágur skólagjalda í þeim greinum þar sem Ísland hefur sérstöðu verði rýmri en þrengri til að sporna gegn neikvæðum afleiðingum skólagjaldanna og koma í veg fyrir sambærilegt áfall og norskir háskólar urðu fyrir þegar skólagjöld fyrir nemendur utan EES/EFTA voru innleidd þar í landi 2023. Þar að auki nefndu fulltrúar SHÍ alvarleika þess að reglur um fyrirkomulag gjaldanna og undanþágur hafi enn ekki verið birtar og fjöldi niðurfelldra skólagjalda er enn óljós þegar umsóknir fyrir alþjóðanema við HÍ opna eftir um það bil mánuð.
Við þökkum ráðuneytinu fyrir góðan og gagnlegan fund.