Önnur félög innan Háskóla Íslands
Hér birtist listi yfir önnur félög innan Háskólans. Ef þitt félag birtist ekki eða upplýsingarnar eru rangar sendið okkur póst á shi@hi.is.
Háskólaræktin
Íþróttahús Háskóla Íslands við Sæmundargötu er opið öllum nemendum og starfsfólki gegn vægu gjaldi. Í boði eru skipulagðir tímar í sal samkvæmt stundatöflu og aðstaða í tækjasal. Einnig geta hópar leigt íþróttasalinn fyrir boltaíþróttir eða aðra íþróttatengda viðburði.
- Gufubað er í kjallara íþróttahússins.
- Árskort í Háskólaræktina er 9.000 kr.
- Nánar um Háskólaræktina hér
Háskóladansinn
Háskóladansinn er dansfélag innan Háskóla Íslands. Í hverri viku er boðið upp á fjölbreytta danstíma, bæði einstaklings og paradansa. Einnig er reynt að hittast reglulega utan danstímanna til að dansa og skemmta sér saman.
Á vegum félagsins eru haldin regluleg námskeið, gegn vægu verði fyrir stúdenta að sjálfsögðu. Félagið heldur úti heimasíðunni þeirra en eru einnig á Facebook og instagram þar sem helstu upplýsingar um samtökin er að finna, sem og tæknilegar upplýsingar, skráningu á námskeið og fleira í þeim dúr.
Forseti félagsins er Catherine O´Hara, hægt er að hafa samband á haskoladansinn@haskoladansinn.is
Stúdentaleikhúsið
Stúdentaleikhúsið samanstendur af gjörningaóðum og leikglöðum stúdentum sem setja upp tvær leiksýningar á hverju skólaári.
Í Stúdentaleikhúsinu er alls konar fólk – þó flest eigi það sameiginlegt að vera ofurlítið athyglissjúkir stúdentar við HÍ (þó eina skilyrðið fyrir inngöngu sé að vera búin/n/ið með framhaldsskólapróf).
Þetta iðandi og unga áhugaleikhús hefur þótt ansi kröftugt og fengið góða dóma fyrir áhugamannaleiksýningar sínar. Meðlimir Stúdentaleikhússins fara oft í frekara listnám og margir fyrrverandi meðlimir Stúdentaleikhússins vinna í dag við leiklist eða í leikhúsum.
Á síðu Stúdentaleikhússins má finna allar upplýsingar um félagið.
Háskólakórinn
Háskólakórinn sér um kórastarf innan Háskóla Íslands. Þar fá söngelskir stúdentar tækifæri til að kynnast öðru tónlistar áhuga fólki og tækifæri til að syngja opinberlega. Í kórnum eru reglulegar æfingar og troðið er upp við hvert tækifæri.
Háskólakórinn er á Facebook
Einnig er starfrækur Kvennakór Háskóla Íslands og upplýsingar um hann má finna hér.
Hugrún, geðfræðslufélag
Hugrún, geðfræðslufélag var stofnað vorið 2016 af nemendum í hjúkrunarfræði, læknisfræði og sálfræði við Háskóla Íslands. Í dag taka fjölmargir nemendur úr Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Akureyri einnig þátt í starfsemi félagsins. Félagið hefur það að markmiði að fræða ungt fólk um geðheilbrigði, geðraskanir og úrræði, sem og að auka samfélagslega vitund.
Forseti félagsins er Axel Pétur Ólafsson og er hægt að hafa samband á hugrunhugur@gmail.com
Q – félag hinsegin stúdenta
Q – félag hinsegin stúdenta er hagsmunafélag innan háskólasamfélagsins. Félagið vinnur að félagsstarfi og hagsmunabaráttu hinsegin stúdenta og að virðing sé borin fyrir margbreytileika innan háskólasamfélagsins. Forseti félagsins er Fannar Þór Einarsson, hægt er að hafa samband á queer@queer.is.
Ada, Hagsmunafélag kvenna í upplýsingatækni við HÍ
Ada vill skapa vettvang fyrir konur í upplýsingatækni við Háskóla Íslands, vera öruggt umhverfi til þess að mynda tengsl, deila reynslu og styðja hvor aðra. Forseti félagsins er Helena Stefánsdóttir. Fylgstu með á instagram: ada.felag eða hafðu samband við ada@hi.is.
Alpha Omega, félag kristinna stúdenta
Alpha Omega er félag kristinna stúdenta við Háskóla Íslands. Forseti félagsins er Rebecca Rose.
Femínistafélag Háskóla Íslands
Femínistafélag Háskóla Íslands er þverpólitískt félag háskólanema sem vilja berjast fyrir jafnrétti kynjanna. Forseti félagsins er Íris Björk Ágústsdóttir. Hægt er að hafa samband við félagið á feministarhi@hi.is.
ELSA Ísland – European Law Students' Association á Íslandi
ELSA Iceland er Íslandsdeild sambands evrópskra laganema. Forseti félagsins er Þór Hinriksson, hægt er að hafa samband við fálegið á president@is.elsa.org
Ex Deus bænahópur (Prayer group)
Ex Deus er bænahópur. Forseti félagsins er Elliot Jones, hægt er að hafa samband á exdeusiceland@gmail.com
Réttvís
Réttvís er félagsskapur laganema og nýútskrifaðra lögfræðinga með þann tilgang að miðla þekkingu um lögfræðileg álitaefni á mannamáli. Forseti félagsins er Jónas Már Torfason.
Team Spark - Formula Student Iceland
Team Spark hannar, smíðar og þróar rafknúna kappakstursbíla og keppir í formúlukeppnum stúdenta fyrir hönd Háskóla Íslands. Verkefnastjóri félagsins er Sigurður P. Fjalarsson Hagalín. Hægt er að hafa samband á teamspark@teamspark.is
Christian Student Fellowship (CSF)
Við erum hópur stúdenta sem vilja þroskast og vaxa saman sem fylgisfólk Krists. Við hittumst einu sinni í viku fyrir skemmtilegheit, vinskap, Biblíufræðslu og fría pítsu! Öll eru velkomin.
Fyrir frekari upplýsingar er hægtað hafa samband við Hönnuh hjá hfj7@hi.is.
Háskólafélag Amnesty International
Félag fyrir áhugafólk á aldrinum 18-30 ára um starf Amnesty International.
Forsetar félagsins eru Bergur Arnar Hrafnkell Jónsson og Rebekka Margrét Elínardóttir Kjartansdóttir. Hægt er að hafa samband í gegnum netfangið amnestyhaskolahreyfing@gmail.com.
BEST Reykjavík
Félagið er íslenskt undirfélag evrópsku samtakanna BEST (Board of European Students of Technology). Tilgangur félagsins er að þróa og standa fyrir viðburðum sem auka víðsýni evrópskra tæknistúdenta, kynna þeim evrópska menningu og byggja upp hæfileika til að stunda vinnu í alþjóðlegu þekkingarsamfélagi. Nemendur á Verkfræði- og náttúruvísindasviði geta tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi félagsins.
Forseti félagsins er Roman Chudov.
Netfang: reykjavik@best-eu.org
Lýðheilsufélag læknanema
Lýðheilsufélag læknanema er sjálfstætt samstarfsfélag Félags Læknanema (FL). Hluterk félagsins er að efla áhuga og þekkingu á lýðheilsu og tengdum málefnum. Það hefur umsjón með verkefninu Sjálfselsk, sem hefur það hlutverk að efla geðheilsu læknanema.
Fastir liðir í starfsemi Lýðheilsufélagsins eru t.a.m. Bangsaspítalinn, fræðslukvöld og samstarf við sambærileg félög í öðrum löndum.
Forseti félagsins er Anna Karen Richardson.
Netfang: lydheilsufelag.laeknanema@gmail.com
Slagtog - Femínísk sjálfsvörn
Slagtog – femínísk sjálfsvörn sérhæfir sig í að kenna og þróa femíníska sjálfsvörn, sem er fyrsta stigs forvörn gegn kynbundnu ofbeldi.
Netfang: slagtog@slagtog.org
Heimasíða: http://slagtog.org/
Félag asískra háskólanema á Íslandi
Félag asískra háskólanema á Íslandi stendur m.a. fyrir asískum menningarviðburðum á Íslandi. Forseti FAH er Fjalldís Ghim.
Facebook-síða: https://www.facebook.com/fahislandi
Bjargráður, félag læknanema um skyndihjálp
Bjargráður er félag læknanema um endurlífgun og skyndihjálp.
Forseti félagsins er Guðrún Ólafsdóttir.
Instagram-reikningur: https://www.instagram.com/bjargradur/
Facebook-síða: https://www.facebook.com/bjargradur
Kristilegt stúdentafélag (KSF)
KSF er félag fyrir 19-30 ára gamalt fólk sem hittist alla miðvikudaga klukkan 20:30 á Holtavegi 28. Allir eru velkomnir á viðburði félagsins.
Netfang: kristilegtstudentafelag@gmail.com
Leikjaklúbbur Háskóla Íslands
Leikjaklúbbur Háskóla Íslands er fyrir alla sem hafa áhuga á leikjum og spilum af einhverju tagi.
Formaður: Benjamin Scott Baroun, bsb49@hi.is
Discord: https://discord.gg/277DwYCDXx
Félag áhugamanna um lyflækningar
Markmið FÁL er fyrst og fremst að auka áhuga og þekkingu læknanema á Íslandi á lyflækningum.
Formaður: Kristján Bjarki Halldórsson
Netfang: seidskrattar@gmail.com
Vélmennavinafélag
Tilgangur Vélmennavinafélagsins er að aðstoða nemendur við Tæknifræðisetur Háskóla Íslands með tæknitengda viðburði. Félagið vinnur einnig að námskeiðum og samstarfi nemenda
með tæknitengd atriði sem og forritun, vélbúnað, o.þ.h.
Formaður: Andri Hrafn Þorsteinsson
Netfang: vvf@hi.is