27. október, 2026
Opið fyrir umsóknir í aðra úthlutun Stúdentasjóðs
Búið er að opna fyrir umsóknir í aðra úthlutun Stúdentasjóðs. Hægt er að sækja um styrki hér til miðnættis þann 10. nóvember næstkomandi. Við hvetjum ykkur eindregið til þess að fara eins ítarlega eftir leiðbeiningum í umsóknarskjali og kostur er, en frávik frá reglum varðar frávísun umsóknar.
Áður en sótt er um hvetjum við ykkur til að kynna ykkur Stúdentasjóð á heimasíðu Stúdentaráðs og sérstaklega lög og verklagsreglur hans. Athugið að önnur úthlutun snýr að sérstyrkjum og býður umsóknareyðublaðið því ekki upp á að sækja um fasta styrki. Umsóknir um fasta styrki skulu berast á studentasjodur@hi.is.
Spurningum skal vísað til Ara Hallgrímssonar, forseta sjóðsins, á netfangið studentasjodur@hi.is, eða til Réttindaskrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands.