1. september, 2026
Lokun malarbílastæðis og breyttir opnunartímar bygginga háskólans
Nú styttist óðum í Októberfest og við hjá Stúdentaráði viljum því upplýsa ykkur um að aðgengi að byggingum háskólans og malarbílastæðinu við Vatnsmýrina breytist á meðan hátíðinni stendur.
Stúdentar og gestir hátíðarinnar munu ekki hafa aðgang að byggingum Háskóla Íslands eftir kl. 20:00 á meðan hátíðinni stendur, frá fimmtudeginum 10. september til laugardagsins 12. september. Stúdentakort með auknum aðgangi munu því ekki virka eftir kl. 20:00 þessa þrjá daga.
Þá verður malarbílastæðið við Vatnsmýrina einnig lokað frá kl. 17:00 föstudaginn 4. september (næsta föstudag) og út þriðjudaginn 15. september.
Við óskum ykkur góðrar skemmtunar á hátíðinni og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem breytingarnar kunna að skapa.