2. febrúar, 2024
Stúdentaráðsfundur 7. febrúar 2024
Miðvikudaginn 7. febrúar 2024 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu HT-104.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá:
- Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
- Fundargerð síðasta fundar Stúdentaráðs borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:10-17:20
- Kynning – Juan Camilo Roman, Verkefnisstjóri Spretts og fjölmenningarfulltrúi HÍ 17:20-17:35
- Kynning frá Q-félagi hinsegin stúdenta 17:35-17:50
- Tillaga um skipan þingfulltrúa á Landsþing LÍS 2024 17:50-18:00
Hlé 18:10-18:20 - Yfirlýsing vegna stöði geðheilbrigðismála innan HÍ (atkvæðagreiðsla) 18:20-18:30
- Tilnefning Stúdentaráðs í kjöri til Ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunnar og á sviði barna og ungmenna (atkvæðagreiðsla) 18:30-18:40
- Skipulagsmál og samgöngumál, umræður 18:30-18:40
- Tillaga um Sjálfsala á Háskólatorgi (atkvæðagreiðsla) 18:40-18:55
- Tillaga um hreiður í Sögu (atkvæðagreiðsla) 18:55-19:10
- Tillaga um um staðlotur á Menntavísindasviði (atkvæðagreiðsla) 19:10-19:25
- Önnur mál 19:05-19:15
- Fundi slitið 19:15