29. febrúar, 2024
Stúdentaráðsfundur 5. mars 2024
Miðvikudaginn 5. mars 2024 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu H-101 í Stakkahlíð.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins. Athugið að fundurinn fer fram á íslensku.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá:
- Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
- Fundargerð síðasta fundar Stúdentaráðs borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:10-17:20
- Kynning – um bílastæða og samgöngumál frá framkvæmda- og tæknisviði – Kristinn Jóhannesson 17:20-17:40
- Tillaga um að Stúdentaráð Háskóla Íslands beiti sér fyrir upptöku „Leiðar B“ í bílastæðamálum (atkvæðagreiðsla) 17:40-17:50
- Lagabreytingar 17:50-18:10
- Yfirlýsing SHÍ vegna breytingar á fjárframlagi ríkisins til háskólastigsins (atkvæðagreiðsla) 18:10-18:20
- Tillaga um frískáp (atkvæðagreiðsla) 18:20-18:30
Hlé 18:30-18:40
- Tillaga um að Stúdentaráð falli frá íþyngjandi rekstrarkröfum á Félagsstofnun stúdenta í ljósi rekstrarstöðu Hámu (atkvæðagreiðsla) 18:40-18:50
- Tillaga um áheyrnarfulltrúa allra fylkinga í stjórn Félagsstofnunar stúdenta (atkvæðagreiðsla) 18:50-19:00
- Tillaga um aðstöðu nemendafélaga á FVS (atkvæðagreiðsla) 19:00-19:10
- Tillaga um aðgang að byggingum HÍ (atkvæðagreiðsla) 19:10-19:20.
- Tillaga um endurnýjun á aðbúnaði í Odda (atkvæðagreiðsla) 19:20-19:30
- Tillaga um að SHÍ taki undir ályktun um endurtektarpróf á Heilbrigðisvísindasviði (atkvæðagreiðsla) 19:30-19:40
- Önnur mál
- Fundi slitið 19:40