21. ágúst, 2026
Stúdentaráðsfundur 25. ágúst 2026
Þriðjudaginn 25. ágúst kl. 17:30 fer fram stúdentaráðsfundur í stofu N-132 í Öskju.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta og öllum áhugasömum er velkomið að mæta. Ef einhverjar breytingar verða á dagskrá fundarins eða staðsetningu hans má finn a þær á vefsíðu Stúdentaráðs, student.is.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570-0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
1. Fundur settur 17:30-17:35
2. Fundargerð stúdentaráðsfundar 23. júní 2026 borin upp til samþykktar 17:35-17:40
3. Tilkynningar og mál á döfinni 17:40-17:50
4. Kynning frá Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta LÍS 17:50-18:10
5. Niðurstöður úr stefnumótunarferð SHÍ 18:10-18:20
6. Skipun fulltrúa stúdenta í eftirfarandi nefndir háskólaráðs: Málnefnd, ráð um málefni fatlaðs fólks og skipulagsnefnd 18:20-18:25
7. Kjör í stjórn Stúdentasjóðs 18:25-18:30
8. Fundarhlé 18:30-18:40
9. Tillaga að samræmdum sérúrræðum fyrir barnshafandi nemendur 18:40-18:50
Flutningsmaður: Andrea Edda Guðlaugsdóttir, oddviti Vöku og stúdentaráðsliði
10. Tillaga að SHÍ útbúi verkferil sem nemendafélög geta nýtt þegar upp koma eineltis- og/eða ofbeldismál 18:50-19:00
Flutningsmaður: Andrea Ösp Hanssen, sviðsráðsforseti Félagsvísindasviðs og stúdentaráðsliði
11. Tillaga að Stúdentaráð beiti sér fyrir sérstakri flýtileið í Uglu í aðdraganda kosninga til Stúdentaráðs 19:00-19:10
Flutningsmaður: Lárus Logi Elentínusson, sviðsráðsforseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs og stúdentaráðsliði
12. Tillaga að Stúdentaráð framkvæmi stöðumat á líðan við Háskóla Íslands 19:10-19:20
Flutningsmaður: Vera Mist Magnúsdóttir, sviðsráðsforseti Heilbrigðisvísindasviðs og stúdentaráðsliði
13. Tillaga að Stúdentaráð sendi erindi til stjórnar Félagsstofnunar stúdenta (FS) um að gerð verði úttekt á öryggismálum á stúdentagörðum FS 19:20-19:30
Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði
14. Tillaga að uppsetningu sjálfsala í samstarfi við FS 19:30-19:40
Flutningsmaður: Ari Hallgrímsson, sviðsráðsforseti Hugvísindasviðs og stúdentaráðsliði
15. Tillaga um að Háskóli Íslands haldi hinsegin fánanum að húni 19:40-19:50
Flutningsmaður: Ívar Máni Hrannarsson, sviðsráðsforseti Menntavísindasviðs og stúdentaráðsliði
16. Tillaga um aukið skipulag og utanumhald vettvangsnáms 19:50-20:00
Flutningsmaður: Ragnar Leó Sigurgeirsson, stúdentaráðsliði
17. Tillaga um könnun á stöðu foreldra í námi 20:00-20:10
Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði
18. Bókfærð mál 20:10-20:20
19. Önnur mál 20:20-20:30
20. Fundi slitið 20:30