10. janúar, 2024
Stúdentaráðsfundur 15. janúar 2024
Mánudaginn 15. janúar 2024 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu N-132.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá:
- Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
- Fundargerð síðasta fundar Stúdentaráðs borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:10-17:20
- Fjárveitingar til Háskóla Íslands – Guðmundur Ragnar Jónsson, framkvæmdastjóri sameiginlegrar stjórnsýslu HÍ 17:20-17:45
- Kynning á skýrslu um MSNM – Gísli Laufeyjarson Höskuldsson 17:45-18:00
- Fjármál stúdentaráðs 18:00-18:10
Hlé 18:10-18:20
- Næstu skref varðandi lögmæti skrásetningargjaldsins (atkvæðagreiðsla) 18:20-18:30
- Skipulagsmál 18:30-18:40
- Umræður og tillaga að efni í herferð SHÍ (atkvæðagreiðsla) 18:40-18:55
- Kynning á Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) – Alexandra Ýr van Erven 18:55-19:10
- Önnur mál 19:05-19:15
- Fundi slitið 19:15