12. október, 2026

Stúdentaráðsfundur 13. október 2026

Þriðjudaginn 13. október kl. 17:30 fer fram stúdentaráðsfundur í stofu N-132 í Öskju.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta og öllum áhugasömum er velkomið að mæta. Ef einhverjar breytingar verða á dagskrá fundarins eða staðsetningu hans má finn a þær á vefsíðu Stúdentaráðs, student.is.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570-0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Fundardagskrá

1. Fundur settur 17:30-17:35

2. Fundargerð stúdentaráðsfundar 22. september 2026 borin upp til samþykktar 17:35-17:40

3. Tilkynningar og mál á döfinni 17:40-18:00

4. Framkvæmdaáætlanir nefnda Stúdentaráðs 18:00-18:40

5. Fundarhlé 18:40-18:55

6. Tillaga að efla starfsnám á Félagsvísindasviði 18:55-19:05

Flutningsmaður: Andrea Edda Guðlaugsdóttir, oddviti Vöku og stúdentaráðsliði

7. Tillaga að SHÍ ítreki stuðning sinn við Palestínu 19:05-19:15

Flutningsmenn: Stúdentaráðsliðar Röskvu

8. Tillaga að Stúdentaráð beiti sér fyrir því að settar verði verklagsreglur um verðlag bílastæða 19:15-19:25

Flutningsmaður: Ari Hallgrímsson, sviðsráðsforseti Hugvísindasviðs og stúdentaráðsliði

9. Tillaga að Stúdentaráð krefji Hámu um sama verð á sömu vörum hjá óháð staðsetningu 19:25-19:35

Flutningsmenn: Dóra Rún Sigurðardóttir, Hildur Ósk Sævarsdóttir, Kristrún Ágústsdóttir, Lárus Logi Elentínusson og Vilborg Elísabet Árnadóttir, sviðsráð Verkfræði- og náttúruvísindasviðs

10. Tillaga að Stúdentaráð skili inn umsögn um breytingu á húsaleigulögum 19:35-19:45

Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði

11. Bókfærð mál 19:45-19:50

12. Önnur mál 19:50-20:00

13. Fundi slitið 20:00

Deila

facebook icon
linkedin icon