8. desember, 2023
Stúdentaráðsfundur 13. desember 2023
Miðvikudaginn 13. desember 2023 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu VHV-007.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá:
- Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
- Fundargerð síðasta fundar Stúdentaráðs borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:10-17:20
- Erindi til umboðsmanns Alþingis um ólögmæti skrásetningagjaldanna (atkvæðagreiðsla) 17:20-17:35
- Lagabreyting (atkvæðagreiðsla) 17:35-17:50
- Umræður og tillaga að efni í herferð SHÍ (atkvæðagreiðsla) 17:50-18:05
- Októberfest og Voffdaga skýrslur kynntar 18:05-18:15
Hlé 18:15-18:25 - Verklagsreglur SHÍ og Siða og jafnréttisreglur SHÍ (atkvæðagreiðsla) 18:25-18:40
- Tímalína stórra mála SHÍ – Húsnæðismál 18:40-18:55
- Tillaga um yfirlýsingu SHÍ varðandi Palestínu og Ísrael (atkvæðagreiðsla) 18:55-19:05
- Önnur mál 19:05-19:15
- Bókfærð mál
- Fundi slitið 19:15