9. nóvember, 2026
Stúdentaráðsfundur 10. nóvember 2026
Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 17:30 fer fram stúdentaráðsfundur í stofu N-132 í Öskju.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta og öllum áhugasömum er velkomið að mæta. Ef einhverjar breytingar verða á dagskrá fundarins eða staðsetningu hans má finn a þær á vefsíðu Stúdentaráðs, student.is.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570-0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
1. Fundur settur 17:30-17:35
2. Fundargerð stúdentaráðsfundar 13. október 2026 borin upp til samþykktar 17:35-17:40
3. Heimsókn frá fulltrúum stúdenta í stjórn Félagsstofnunar stúdenta (FS) 17:40-18:00
4. Tilkynningar og mál á döfinni 18:00-18:10
5. Tillaga að breytingu á dagsetningu brautskráningar 18:10-18:20
Flutningsmaður: Andrea Edda Guðlaugsdóttir, oddviti Vöku og stúdentaráðsliði
6. Tillaga að endurtektarprófum í lyfjafræði 18:20-18:30
Flutningsmaður: Ugla Ósk Bæhrenz, varastúdentaráðsliði
7. Tillaga að fá orku í Eirberg 18:30-18:40
Flutningsmenn: Ríkharður Daði Ólafsson, nefndarmeðlimur í Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd SHÍ, og Dagbjört Lára Bjarkadóttir, varastúdentaráðsliði
8. Tillaga að forgangi barna stúdenta á Mánagarði 18:40-18:50
Flutningsmaður: Andrea Edda Guðlaugsdóttir, oddviti Vöku og stúdentaráðsliði
9. Tillaga að Háskólinn og FS komi sér upp sameiginlegri lausn í innheimtu bílastæðagjalda 18:50-19:00
Flutningsmaður: Einar Jónsson, forseti Umhverfis- og samgöngunefndar SHÍ
10. Tillaga að lukkuhjóli á Stúdentakjallaranum 19:00-19:10
Flutningsmaður: Jón Gnarr, stúdentaráðsliði
11. Fundarhlé 19:10-19:20
12. Tillaga að samræmingu sértækra úrræða í prófum fyrir nemendur með íslensku sem annað mál 19:20-19:30
Flutningsmaður: Auður Halla Rögnvaldsdóttir, hagsmunafulltrúi SHÍ
13. Tillaga um að fá sjálfsala í Sögu 19:30-19:40
Flutningsmenn: María Fönn Frostadóttir og Ragnar Leó Sigurgeirsson, stúdentaráðsliðar
14. Tillaga að stofnun styrktarsjóða fyrir nemendur utan EES 19:40-19:50
Flutningsmaður: Andrea Edda Guðlaugsdóttir, oddviti Vöku og stúdentaráðsliði
15. Tillaga um styrki vegna skólagjalda nemenda utan EES 19:50-20:00
Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði
16. Tillaga að Stúdentaráð beiti sér fyrir auknu aðgengi stúdenta að tíðarvörum í öllum byggingum Háskólans 20:00-20:10
Flutningsmaður: Auður Kjerúlf, varastúdentaráðsliði og nefndarmeðlimur í Félagslífs- og menningarnefnd SHÍ
17. Tillaga að Stúdentaráð beiti sér fyrir því að námsmenn fái afslátt af stökum fargjöldum Strætó 20:10-20:20
Flutningsmenn: Hildur Ósk Sævarsdóttir, varastúdentaráðsliði, og Hildur Agla Ottadóttir, nefndarmeðlimur í Fjármála- og atvinnulífsnefnd SHÍ
18. Tillaga að Stúdentaráð krefjist ítarlegrar sundurliðunar á kostnaðarliðum skrásetningargjalds Háskóla Íslands 20:20-20:30
Flutningsmaður: Kristrún Ágústsdóttir, stúdentaráðsliði
19. Tillaga um undanþágu námsleiðarinnar Íslenska sem annað mál frá skólagjöldum 20:30-20:40
Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði
20. Lagabreytingartillaga – 4. mgr. 8. gr. laga Stúdentasjóðs 20:40-20:50
Flutningsmaður: Ari Hallgrímsson, forseti Stúdentasjóðs
21. Bókfærð mál 20:50-20:55
22. Önnur mál 20:55-21:05
23. Fundi slitið 21:05