16. july, 2025
Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum í stöðu sjálfbærnifulltrúa fyrir starfsárið 2025-2026
Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum í stöðu sjálfbærnifulltrúa fyrir starfsárið 2025-2026.
Sjálfbærnifulltrúi:
Sjálfbærnisfulltrúi háskólanema er stöðugildi sem Festa – miðstöð um sjálfbærni fjármagnar með styrk til skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Fulltrúinn vinnur í nánu samstarfi við Festu með því markmiði að efla vitund háskólanema um sjálfbærni og stuðla að sjálfbærari háskólasamfélagi.
Helstu verkefni:
- Skipuleggja fræðsluviðburði tengda sjálfbærni.
- Miðla upplýsingum um sjálfbærnimál innan SHÍ og Háskóla Íslands.
- Halda utan um yfirlit og framvindu verkefna.
- Skýrslugerð um stöðu og þróun sjálfbærnismála innan háskólasamfélagsins.
Hæfniskröfur:
Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og góða skipulagshæfni. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og/eða áhuga á sjálfbærni og hagsmunagæslu stúdenta. Reynsla af viðburðastjórnun er kostur, sem og þekking eða reynsla af störfum innan SHÍ.
Umsóknarferli:
Umsóknarfrestur er til 30. júlí 2025. Umsóknir skulu berar á netfangið shi@hi.is. Hverri umsókn skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá og upplýsingar um tvo meðmælendur. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.