20. mars, 2026
Sögulegur sáttmáli stúdenta Háskóla Íslands við rektor
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands og Arent Orri J. Claessen, forseti Stúdentaráðs HÍ
Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands og rektor Háskóla Íslands hafa undirritað sáttmála sem markar tímamót í samskiptum stúdenta og stjórnenda skólans. Sáttmálinn felur í sér að rektor og Stúdentaráð ætla að berjast saman fyrir bættum aðstæðum stúdenta og þrýsta saman á stjórnvald til þess. Þá felur sáttmálinn í sér að rektor og Stúdentaráð vinni úr 32 tillögum sem lagðar voru fram og samþykktar í Stúdentaráði á yfirstandandi skólaári.
Með samkomulaginu er stigið mikilvægt skref í átt að markvissri samvinnu milli stúdenta og háskólayfirvalda. Sáttmálinn er stór áfangi sem endurspeglar aukið vægi sameinaðrar raddar stúdenta í háskólasamfélaginu. Þetta er jafnframt fordæmisgefandi fyrir áframhaldandi samstarf og þróun háskólans. Sáttmálinn undirstrikar mikilvægi virks samráðs við stúdenta þegar kemur að framþróun Háskólans og setur skýran ramma um hvernig eftirfylgni með sáttmálanum verður háttað. Sáttmálinn inniheldur þær tillögur sem talið er brýnast að rektor beiti sér fyrir, en við í Stúdentaráði fögnum þessum áfanga og vonum að þetta marki nýtt upphaf í hagsmunabaráttu stúdenta, með virku og skýru samstarfi við rektor og háskólann, og að með sáttmálanum hafi verið tekin skóflustunga að frekara samráði.
Hér er sáttmálinn í heild sinni:
Nám og kennsla
- Raunverulegt fjarnám – Tryggja skal að fjarnám sé í raun að fullu aðgengilegt án mætingarskyldu
- Betra skipulag námsmats og jafnara vinnuálag – Námsmat skal uppfært til að vinnuálagi sé dreift jafnar yfir önnina.
- Endurskoðun kennaranáms – Uppfæra á námsefni og auka vægi verklegrar þjálfunar.
- Upptökupróf og prófatímabil bætt – Tryggja á rétt stúdents til upptökuprófa/endurtektar og nægt svigrúm í tímabili prófa.
- Aukið aðgengi að inntökuprófum – Inntökupróf, svo sem í læknisfræði, skal halda einnig í öðrum landshlutum en á höfuðborgarsvæðinu.
- Næring í prófum – Tryggja skal að stúdentar geti neytt næringar í lokaprófum.
- Efling Tengslatorgs – Styrkja þarft tengsl milli náms, rannsókna og atvinnulífs.
Kjaramál
- Vaxtalausar raðgreiðslur skrásetningargjalds – Tryggja skal áframhaldandi vaxtalausar greiðsludreifingar skrásetningargjalds.
- Endurskoðun skrásetningargjalds – Tryggja skal gagnsæi og sanngirni í uppbyggingu gjaldsins.
- Tvírukkanir felldar – Fella skal niður gjöld sem þegar eru innifalin í skrásetningargjaldi.
- Rýmri réttur til fæðingarstyrks námsmanna – Tryggja þarf sveigjanleg skilyrði fyrir foreldra í námi.
- Aukin fjármögnun stoðþjónustu – Tryggja skal opinbera fjármögnun fyrir þjónustu sem styður við nemendur með sérþarfir.
Samgöngur
- Samgöngukort fyrir stúdenta – Innleiða skal afsláttarkerfi fyrir vistvænar samgöngur.
- Fyrirsjáanleiki bílastæðagjalda – Setja þarf skýr mörk á verðhækkanir.
- Undanþágur frá bílastæðagjöldum – Tryggja skal undanþágur fyrir ákveðna hópa stúdenta.
- Sanngjörn gjaldtaka fyrir bílastæði – Tryggja skal að þjónusta bílastæði verði aukin í ljósi gjaldtöku.
Aðstaða og aðbúnaður
- Lengri og samræmdur opnunartími bygginga – Samræma skal opnunartíma og lengja aðgang að byggingum.
- Aðgengi að rafmagnsinnstungum – Tryggja skal að allar kennslustofur uppfylli grunnþarfir stúdenta.
- Bætt aðstaða í Árnagarði – Endurbæta þarf aðstöðu í Árnagarði, búnað og þjónustu.
- Bætt prentþjónusta – Tryggja þarf áreiðanlega og aðgengilega prentþjónustu.
- Internetaðgengi á stúdentagörðum – Stúdentum skal tryggð netþjónusta á stúdentagörðum.
- Betri nýting rýmis í Odda – Nýta skal rýmið í Odda þar sem áður stóð Háma í nemendamiðaða þjónustu.
Stúdentalíf og þjónusta
- Ókeypis aðgangur að kennslustofum fyrir nemendafélög – Styðja skal starfsemi nemendafélaga með gjaldfrjálsu aðgengi að stofum.
- Sérstök aðstaða fyrir nemendafélög – Tryggja skal fasta aðstöðu til funda og geymslu.
- Aukið aðgengi að tíðarvörum – Tryggja þarf aðgengi að gjaldfrjálsum tíðarvörum.
- Bætt aðgengi fyrir foreldra í námi – Bæta skal aðstöðu og aðgengi fyrir stúdenta með börn.
- Aukin sýnileiki sálfræðiþjónustu – Efla þarf sýnileika stuðningsúrræða.
- Viðbragðsáætlun vegna sjálfsvíga á stúdentagörðum – Setja þarf skýrt verklag og styrkja stuðning við aðstandendur.
Jafnrétti og aðgengi að námi
- Réttindi alþjóðlegra nema – Tryggja skal að umsóknarferli sé sanngjarnt og skilvirkt.
- Árleg inntaka í diplómanám fyrir fatlað fólk – Tryggja þarft jafnt aðgengi að námi.
- Réttindi fatlaðs fólks til náms – Alþjóðlegum skuldbindingum um aðgengi að námi skal fylgt í hvívetna.
