22. september, 2026
Skráning er hafin í Íþróttaskóla SHÍ!
Íþróttaskóli SHÍ býður börnum stúdenta og starfsfólks HÍ á aldrinum 1–5 ára upp á skemmtilega hreyfingu og samveru. Tímarnir fara fram á laugardagsmorgnum í Íþróttahúsi Háskóla Íslands við Sæmundargötu og er hver tími 40 mínútur. Fyrsti tíminn er 10. október og sá síðasti 21. nóvember, alls 7 skipti. *Ath að aðeins skráð börn mega taka þátt.
Smellu hér til að skrá barn í íþróttaskóla SHÍ haustönn 2026
Markmið íþróttaskólans er að gefa börnum kost á hreyfinámi, efla hreyfiþroska og hreyfigetu barnanna. Bæta samhæfingu, sjálfstraust og vellíðan. Þrautabrautir skipa stærstan þátt í náminu og reynt að hafa æfingar sem fjölbreyttastar þannig að allir fái eitthvað við sitt hæfi. Unnið er bæði með fín- og grófhreyfingar. Félagsþroski, samvinna og það að taka tillit til annarra er mikilvægur þáttur í starfinu.
Verðið er 3.500 kr en veittur er 500 kr systkinaafsláttur. Heildarverð fyrir 2 systkin yrði því 6.500kr.
Foreldrar taka virkan þátt í tímum með því að aðstoða börnin sín. Þar með gefst þeim mikilvægt tækifæri að kynnast börnum sínum enn betur við aðrar aðstæður en venjulega. Greiðsluupplýsingar verða sendar fljótlega eftir skráningu. Skráningar eru staðfestar með tölvupósti. Skráningar verða afgreiddar í þeirri röð sem þær berast og ef plássin fyllast fara skráningar á biðlista. Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum netfangið shi@hi.is.
Fjölskyldunefnd SHÍ skipuleggur íþróttaskólann.