29. maí, 2025

Skiptafundur stúdentaráðs 30. maí 2025 – Dagskrá

Föstudaginn 30. maí 2025 fer stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar.

Fundardagskrá:

  1. Forseti stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
  2. Fundargerð síðasta fundar stúdentaráðs 25. mars borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
  3. Drög að ársreikningi stúdentaráðs 2024-2025 kynnt 17:10-17:25
  4. Ársskýrsla stúdentaráðs kynnt 17:25-17:50
  5. Bókfærð mál

Nýtt stúdentaráð 2025-2026 tekur við 17:50

  1. Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:50
  2. Fundargerð kjörfundar borin upp til samþykktar 17:50-17:55
  3. Praktísk atriði til nýrra Stúdentaráðsliða 17:55-18:10
  4. Fundarhlé 18:10-18:20
  5. Tillaga um jafnari stöðu fjarnema utan höfuðborgarsvæðisins (atkvæðagreiðsla)  18:20-18:30
  6. Tillaga um að SHÍ beiti sér fyrir afmörkuðu rými fyrir verklega þjálfun meistaranema í kínískri sálfræði (atkvæðagreiðsla) 18:30-18:40
  7. Tillaga um kennslustofur fyrir nemendafélög (atkvæðagreiðsla) 18:40-18:50
  8. Tillaga um næringu í lokaprófum (atkvæðagreiðsla) 18:50-19:00
  9. Tillaga um starfstengt diplómanám (atkvæðagreiðsla) 19:00-19:10
  10. Önnur mál 19:10-19:20
  11. Fundi slitið.

Deila

facebook icon
linkedin icon