14. mars, 2024
Sæmundarstund 20. mars 2024
Boðið er til Sæmundarstundar sem fer fram miðvikudaginn 20. mars kl. 12:30 til 13.00, við styttuna af Sæmundi fróða. Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og skrifstofa rektors Háskóla Íslands.
Sæmundarstund var fyrst haldin á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011 að frumkvæði Oddafélagsins, sem er félag áhugamanna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum þar sem Sæmundur fróði bjó. Stundin hefur verið haldin árlega síðan, jafnan á degi sem næst vorjafndægri.
Þar er lærdómsmannsins og þjóðsagnapersónunnar Sæmundar fróða Sigfússonar minnst en hann var uppi á 11. og 12. öld. Sæmundur fór utan til náms og nam m.a. við skóla í Evrópu áður en hann sneri aftur til Íslands og gerðist prestur að Odda á Rangárvöllum.
Líkt og fyrri ár fer Sæmundarstund fram við styttuna af Sæmundi á selnum, sem stendur í Skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Styttuna gerði Ásmundur Sveinsson og vísar hún til frægrar þjóðsögu af viðureign Sæmundar við kölska en samkvæmt þjóðsögunni flutti hann Sæmund heim til Íslands í selslíki.
Viðri illa, færist Sæmundarstund inn í anddyri Aðalbyggingar.
Dagskrá
Kl. 12:30 – 13:00
- Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp.
- „Kór Sæmundarstundar“. Börn í Leikskólanum Mánagarði syngja tvö lög.
- Þór Jakobsson, fyrrverandi formaður Oddafélagsins, greinir í örfáum orðum frá sögu og tilgangi Sæmundarstundar.
- Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði, flytur ávarp.
- Rakel Anna Boulter, forseti Stúdentaráðs, flytur ávarp.
- Börnin í Mánagarði syngja eitt eða tvö lög.
- Sæmundarstund slitið.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði í anddyri Aðalbyggingar eftir viðburðinn.