27. nóvember, 2026

Réttindi stúdenta í prófatíð

Nú þegar prófatíðin er hafin er mikilvægt að minna á réttindi stúdenta í prófum.

Próftímabil haustmisseris er frá 25. nóvember – 9. desember.

Þegar gengist er undir próf er stúdentum skylt að hafa meðferðis persónuskilríki svo ganga megi úr skugga um að þeir eigi próftökurétt.

Hér fyrir neðan eru listuð upp helstu réttindi stúdenta þegar kemur að prófum. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um réttindi stúdenta á student.is.

Stúdentar eiga rétt á aðgangi að gömlum prófum:

Stúdentar eiga rétt á aðgangi að gömlum prófum á grundvelli upplýsingalaga nr. 140/2012. Þá dugar ekki ef hluti prófasafnsins sé birtur eða einungis hluti af prófunum sjálfum. Öll gömul próf eiga að vera birt biðji nemendur um það. Kennari ræður þó hvar prófin eru birt og þá þarf t.d. ekki að birta þau á Uglunni eða Canvas. Meginreglan er þó sú að það þarf að gefa stúdentum bæði óheftan aðgang að gögnunum og leyfi til að taka afrit.

Stúdentar eiga rétt á að fá einkunn tveimur vikum eftir að hafa þreytt próf

Einkunnir skulu birtar í síðasta lagi tveimur vikum eftir próf. Felist námsmat í öðru en skriflegu eða munnlegu prófi, er miðað við skiladag ritgerðar/verkefnis eða þann dag sem námsmat fer fram.

Þú átt rétt á að fá útskýringu á einkunn

Stúdent á rétt til að fá útskýringar kennara á mati skriflegrar úrlausnar sinnar, ef hann óskar þess innan fimmtán daga frá birtingu einkunnar. Kennurum er heimilt að halda prófsýningu fyrir alla nemendur námskeiðs þar sem skýrt er út mat skriflegra úrlausna.

Nafnlaus próf

Skriflegar prófúrlausnir skulu merktar prófnúmerum nemenda. Þó geta deildir sett reglur um undanþágu frá því – þú getur athugað fyrirkomulagið hjá þinni deild á hi.is

Þú átt rétt á sjúkraprófi

Ef þú veikist og getur þess vegna ekki mætt til prófs skaltu tilkynna veikindin með tölvupósti til Nemendaskrár (nemskra@hi.is) innan þriggja daga frá prófdegi. Sendu póstinn frá HÍ-netfanginu þínu og tilgreindu númer og heiti námskeiðsins ásamt nafni þínu og kennitölu. Hið sama gildir ef barn þitt veikist.

Dagsetning sjúkra- og endurtökuprófa fer eftir því hvenær upphaflega prófið er:

  • 27. nóvember eða fyrr: Sjúkra- og endurtökupróf eru 17.–19. desember 2026.
  • 28. nóvember til 9. desember: Sjúkra- og endurtökupróf eru 6.–9. janúar 2027.

Aðrar dagsetningar geta gilt í einstökum námskeiðum. Nánari upplýsingar eru í
kennsluskrá deildarinnar þinnar.

Ertu með spurningar?

Réttindaskrifstofa Stúdentaráðs leitast ávallt við að svara spurningum stúdenta eftir bestu getu og leiðbeina þeim um næstu skref við lausn sinna mála. Á Réttindaskrifstofu Stúdentaráðs starfar hagsmunafulltrúi. Hagsmunafulltrúi leiðbeinir og aðstoðar stúdenta til að gæta réttar síns.

Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar. Annaðhvort á shi@hi.is og í síma 5700850 eða beint á hagsmunafulltrúa SHÍ, Auði Höllu Rögnvaldsdóttur í gegnum hagsmunashi@hi.is.

Deila

facebook icon
linkedin icon