16. október, 2026

Rektor Háskóla Íslands mætti á stúdentaráðsfund

Þann 22. september mætti Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, á stúdentaráðsfund í Öskju. Silja Bára ræddi við stúdenta um stefnu Háskóla Íslands til ársins 2031 undir yfirskriftinni „Rými til að dafna“. Jafnframt ræddi hún við stúdentaráðsliða um málefni sem brenna á þeim, meðal annars vanfjármögnun háskólastigsins, Menntasjóðinn og skólagjöld fyrir stúdenta utan EES.

Við þökkum Silju Báru kærlega fyrir komuna!

Stúdentaráðsfundir eru æðsta ákvörðunarvald Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Fundir eru haldnir mánaðarlega að jafnaði og eru opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands.

 

Deila

facebook icon
linkedin icon