23. júní, 2026

Ráðning alþjóðafulltrúa, framkvæmdastjóra, ritstjóra og kjara- og sjálfbærnifulltrúa á skrifstofu Stúdentaráðs

Cynthia Anne Namugambe, Mathias Bragi Ölvisson, Valeria Bulatova og Guðlaug Eva Albertsdóttir hafa bæst í hóp starfsfólks á réttindaskrifstofu Stúdentaráðs. Ráðið var í stöður alþjóðafulltrúa, framkvæmdastjóra, ritstjóra Stúdentablaðsins og kjara- og sjálfbærnifulltrúa.

Alþjóðafulltrúi skrifstofu SHÍ

Cynthia Anne Namugambe hefur verið ráðin alþjóðafulltrúi skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Cynthia er 21 árs nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands og hefur samhliða því starfað sem aðstoðarmaður hjá Spretti, verkefnis um stuðning við nemendur með erlendan bakgrunn. Cynthia hefur mikla reynslu af störfum Stúdentaráðs en hún hefur setið í sviðsráði Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, jafnréttisnefnd og alþjóðanefnd Stúdentaráðs síðastliðið skólaár. þá hefur hún einnig verið ungliðafulltrúi Íslandsdeildar Amnesty International og alþjóðafulltrúi Röskvu.

Alþjóðafulltrúi hefur meðal annars yfirumsjón með framkvæmd þjónustu skrifstofu Stúdentaráðs við erlenda nemendur og hefur það hlutverk að gæta hagsmuna þeirra, auðvelda þeim að gerast virkir þátttakendur í háskólasamfélaginu, svara fyrirspurnum og veita aðra aðstoð.

Framkvæmdastjóri skrifstofu SHÍ

Mathias Bragi Ölvisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Mathias er 26 ára og er með BA-próf úr hagfræði með stjórnmálafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands og BS-próf úr sálfræði frá Óslóarháskóla. Mathias Bragi hefur starfað sem starfsnemi hjá sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi þar sem hann hefur framkvæmt sjálfstæðar greiningar og sinnt samskiptum við ólíka hagaðila. Hann hefur áður starfað hjá Hagstofunni og hefur auk þess mikla reynslu af störfum Stúdentaráðs en hann hefur meðal annars setið sem varafulltrúi í Stúdentaráði og sem forseti Röskvu. Mathias hefur mikla þekkingu á fjármálum og bókhaldi og er öflugur í teymisvinnu sem og sjálfstæðum verkefnum en hann er einnig mjög sveigjanlegur hvað varðar verkefni skrifstofunnar.

Í starfi framkvæmdastjóra felst umsjón með daglegum rekstri skrifstofunnar, fjármálastjórn, bókhaldi og samningsgerð. Einnig tilheyrir starfinu að halda utan um fundargerðir, tryggja markviss og skilvirk samskipti innan ráðsins og við hagsmunaaðila og að annast daglegum störf skrifstofunnar.

Ritstjóri Stúdentablaðsins

Valeria Bulatova hefur verið ráðin ritstjóri Stúdentablaðsins á skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Valeria er 22 ára hagfræðinemi við Háskóla Íslands og hefur mikla reynslu af ritstörfum. Hún var ritstjóri Röskvu síðastliðið starfsár þar sem hún stofnaði nýtt fréttablað Röskvu, Röddina, en hún hefur einnig verið ritstjóri Beneventum, skólablaðs Menntaskólans við Hamrahlíð. Hún hefur einnig góða reynslu af störfum Stúdentaráðs en hún hefur setið sem varafulltrúi í Stúdentaráði síðastliðið starfsár ásamt því að vera fulltrúi nemenda í stjórn Félagsvísindasviðs HÍ.

Ritstjóri Stúdentablaðsins stýrir ritstjórnarstarfi og mótar efnisstefnu blaðsins, skipuleggur útgáfuáætlanir og sér um auglýsingasöfnun. Hann leiðir ritstjórnarteymið og ber ábyrgð á ritstjórnarlegri úrvinnslu efnis með það að markmiði að efla blaðið sem vettvang fyrir fjölbreytta og gagnrýna umræðu meðal stúdenta.

Kjara- og sjálfbærnifulltrúi skrifstofu SHÍ

Guðlaug Eva Albertsdóttir hefur verið ráðin sem kjara- og sjálfbærnifulltrúi skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Guðlaug er 23 sálfræðinemi við Háskóla Íslands með viðskiptafræði sem aukagrein. Guðlaug hefur mikla reynslu af kjaramálum og hefur meðal annars starfað sem tryggingaráðgjafi hjá Sjóvá þar sem hún sinnti ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini. Þá hefur hún setið í Stúdentaráði við Heilbrigðisvísindasvið og í Fjármála- og atvinnulífsnefnd Stúdentaráðs síðastliðið starfsár en hún hefur einnig setið sem varafulltrúi í Stúdentaráði.

Kjara- og sjálfbærnifulltrúi sinnir ráðgjöf og þjónustu við nemendur varðandi kjör og réttindi þeirra á vinnumarkaði. Starfið er liður í samstarfi Stúdentaráðs og Visku – stéttarfélags og felur jafnframt í sér þátttöku í fræðslu og vitundarvakningu um réttindamál, í nánu samstarfi við skrifstofu Visku.

Deila

facebook icon
linkedin icon