1. október, 2026

Opið fyrir umsóknir í fyrstu úthlutun Stúdentasjóðs

Búið er að opna fyrir umsóknir í fyrstu úthlutun Stúdentasjóðs. Hægt er að sækja um styrki hér til miðnættis þann 15. október næstkomandi. Við hvetjum ykkur eindregið til þess að fara eins ítarlega eftir leiðbeiningum í umsóknarskjali og kostur er, en frávik frá reglum varðar frávísun umsóknar.

Áður en sótt er um hvetjum við ykkur til að kynna ykkur Stúdentasjóð á heimasíðu Stúdentaráðs og sérstaklega lög og verklagsreglur hans. Athugið að aðeins fastir styrkir verða veittir í þessari úthlutun, sérstyrkir verða veittir í annarri úthlutun starfsársins.

Spurningum skal vísað til Ara Hallgrímssonar, forseta sjóðsins, á netfangið studentasjodur@hi.is. eða til Réttindaskrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Deila

facebook icon
linkedin icon