2. july, 2026

Ólíkar greiðsluleiðir skrásetningargjalds

Þar sem greiðslutímabil skrásetningargjaldsins stendur yfir telur Stúdentaráð mikilvægt að upplýsa stúdenta um þær greiðsluleiðir sem standa þeim til boða. Tillaga þess efnis var samþykkt á stúdentaráðsfundi 23. júní en frestur til að greiða skrásetningargjaldið er til 6. júlí.

1. Greiðsla í gegnum greiðslusíðu Rapyd

Hægt er að greiða skrásetningargjaldið með eingreiðslu í gegnum greiðslusíðu Rapyd. Hins vegar er vert að benda á að stúdent getur einnig greitt skrásetningargjaldið með raðgreiðslum, en sökum villu á Uglunni kemur sá valmöguleiki upp. Stúdent skal þá greiða skrásetningargjaldið með kreditkorti og ákveða síðan í heimabankanum sínum hvort hann vilji greiða gjaldið með raðgreiðslum.

2. Greiðsla með millifærslu

Hægt er að greiða skrásetningargjaldið með millifærslu. Þá skal millifæra gjaldið á bankareikning Háskóla Íslands (0137-26-000174, kt. 600169-2039). Þá er mjög mikilvægt að senda póst á Nemendaskrá (nemskra@hi.is) þar sem tilteknar eru allar upplýsingar um millifærsluna:

i. Dagsetning

ii. Tími

iii. Upphæð

iv. Kennitala þess nemanda sem skrásetningargjaldið er greitt fyrir

3. Staðgreiðsla með reiðufé

Hægt er að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi og staðgreiða skrásetningargjaldið.

Deila

facebook icon
linkedin icon