31. ágúst, 2026
Nýnemadagar 2026
Nýnemadagar háskólans hófust í dag þann 31. ágúst og standa til föstudagsins 4. september. Við hjá SHÍ höfum lagt háskólanum lið við að gera nýnemadagana eins skemmtilega og hugsast getur og höfum skipulagt alls konar skemmtilega viðburði í vikunni.
Mánudagurinn 31. ágúst
- 10:00-14:00 Stúdentaráð mannaði upplýsingaborð á Háskólatorgi, þar sem miðasala fyrir Októberfest fer einnig fram.
- 11:30-13:00 Kynning á þjónustu háskólans. Helstu þjónustustofnanir skólans voru með kynningarbása þar sem nemendur gátu fengið svör við fjölmörgum spurningum. Til að mynda voru SHÍ, Félagsstofnun Stúdenta, Viska, Alþjóðasvið, Nemendaskrá og fleiri þjónustuaðilar háskólans með bás.
- 13:30 Katla Ólafsdóttir, forseti SHÍ, bauð nýnemum að ganga með sér um háskólasvæðið og deildi með þeim fróðleik og ráðum um það að vera stúdent við Háskóla Íslands
Þriðjudagurinn 1. september
- 10:00-14:00 Stúdentaráð mannar upplýsingaborð á Háskólatorgi, þar sem miðasala fyrir Októberfest fer einnig fram.
- 12:00 Græni nýnemadagurinn. Ragna Benedikta Garðarsdóttir aðstoðarrektor kennslu og Katla Ólafsdóttir forseti SHÍ taka við Grænfánanum fyrir hönd HÍ og SHÍ frá fulltrúa Landverndar. Fulltrúarnir gróðursetja svo tré á lóð háskólans.
Miðvikudagurinn 2. september
- 10:00-14:00 Stúdentaráð mannar upplýsingaborð á Háskólatorgi, þar sem miðasala fyrir Októberfest fer einnig fram.
- 12:00 YUNGAMLI verður með hádegistónleika á Háskólatorgi til að hita upp fyrir Októberfest!
Fimmtudagurinn 3. september
- 10:00-14:00 Stúdentaráð mannar upplýsingaborð á Háskólatorgi, þar sem miðasala fyrir Októberfest fer einnig fram.
- 17:00 Reykjavík International Film Festival (RIFF) heldur vísindaferð (vísó) í Háskólabíói. Hægt er að skrá sig hér.
Föstudagurinn 4. september
- 10:00-14:00 Stúdentaráð mannar upplýsingaborð á Háskólatorgi, þar sem miðasala fyrir Októberfest fer einnig fram.
- 12:00-15:00 Nýnemamót SHÍ í fótbolta verður haldið hátíðlega á grasflötinni fyrir framan Aðalbygginguna. Við hvetjum öll nemendafélög til að skrá sig og alla nýnema sem og aðra stúdenta að taka þátt!
Einnig má finna aðrar gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema á vefsíðu Háskóla Íslands.