22. mars, 2024
Niðurstöður Stúdentaráðskosninga 2024
Kosningar til Stúdentaráðs og Háskólaráðs Háskóla Íslands fóru fram dagana 20. og 21. mars. Heildarkjörsókn til Stúdentaráðs var 31,11% en í fyrra var kjörsókn 32,54%. Nýtt Stúdentaráð tekur við á skiptafundi ráðsins í lok maí og hlutu eftirfarandi aðilar kjör í Stúdentaráð:
Félagsvísindasvið
- Júlíus Viggó Ólafsson (Vaka)
 - Katla Ólafsdóttir (Röskva)
 - Ragnheiður Geirsdóttir (Vaka)
 - Birkir Snær Brynleifsson (Vaka)
 - Patryk Lúkasi Edel (Röskva)
 
Heilbrigðisvísindasvið
- Kristrún Vala Ólafsdóttir (Röskvu)
 - Tinna Eyvindardóttir (Vaka)
 - Eiríkur Kúld Viktorsson (Vaka)
 
Menntavísindasvið
- Gunnar Ásgrímsson (Vaka)
 - Magnús Bergmann Jónasson (Röskva)
 - Ásthildur Bertha Bjarkadóttir (Vaka)
 
Verkfræði- og náttúruvísindasvið
- Kristín Fríða Sigurborgardóttir (Röskva)
 - Jóhann Almar Sigurðsson (Vaka)
 - Ester Lind Eddudóttir (Röskva)
 
Hugvísindasvið
- Ísleifur Arnórsson (Röskva)
 - Sóley Anna Jónsdóttir (Röskva)
 - Anna Sóley Jónsdóttir (Vaka)
 
Heildarkjörsókn til Háskólaráðs var 28,06% en þegar síðast var kosið um fulltrúa nemenda í Háskólaráði árið 2022 var kjörsókn 17,95%. Nýjir fulltrúar stúdenta taka við í lok júní og hlutu eftirfarandi aðilar kjör í Háskólaráð:
Háskólaráð
- Andri Már Tómasson (Röskva)
 - Viktor Pétur Finnson (Vaka)
 
Varamenn:
- Gréta Dögg Þórisdóttir (Röskva)
 - Sigurbjörg Guðmundsdóttir (Vaka)
 
Ítarlegri niðurstöður kosninga er að finna hér.