3. september, 2026

Námsmannahandbókin Akademían er komin út!

Námsmannahandbókin Akademían er komin út. Akademían er, eins og ritstjóri orðar það, „handbók fyrir stúdenta, en vonandi ekki svona leiðinleg handbók sem enginn les nema í neyð“.

Í Akademíuna „var reynt að safna saman því sem maður þarf eiginlega að vita strax í byrjun – hvar þjónustan er, hvað Stúdentaráð gerir, hvernig maður tekur þátt, hvert maður getur leitað með spurningar og hvað er í gangi þegar fyrstu vikurnar fara af stað“. Akademían er ætluð til að „milda höggið“ og hefur verið dreift um byggingar háskólans. Einnig geta stúdentar komið á skrifstofu Stúdentaráðs á 3. hæð á Háskólatorgi og nælt sér í eintak.

Við vonum að Akademían nýtist ykkur vel og við minnum á að þið megið alltaf senda okkur línu eða koma í heimsókn ef þið þarfnist einhverrar aðstoðar.

Deila

facebook icon
linkedin icon