30. janúar, 2025
Karen Lind ráðin kjara- og réttindafulltrúi SHÍ
Í lok síðasta árs undirrituðu Stúdentaráð Háskóla Íslands og Viska – stéttarfélag samstarfssamning. Hluti af samningnum fól í sér ráðningu kjara- og réttindafulltrúa við skrifstofu SHÍ. Gengið var frá ráðningu í byrjun janúar og var Karen Lind Skúladóttir ráðin í starfið.
Karen Lind er þriðja árs nemi í sálfræði við Háskóla Íslands ásamt því að vera forseti fjölskyldunefndar SHÍ. Hún mun, ásamt skrifstofu Visku, veita nemum Háskóla Íslands þjónustu og ráðgjöf um málefni tengd kjara- og réttindamálum á vinnumarkaði. Jafnframt mun hún vinna með fulltrúum Visku að því að efla vitund háskólanema um réttindi þeirra á vinnumarkaði.
„Ég er ótrúlega spennt fyrir verkefninu fram undan. Það er gífurlega mikilvægt að ungt fólk, sem er að hefja sinn starfsferil, hafi aðgang að þjónustu sem tengist kjörum og réttindum. Samstarf SHÍ og Visku gerir það nú að veruleika. Þó að verkefni af þessu tagi eigi sér fyrirmynd á Norðurlöndum þá er það nýjung hér á landi og ég hlakka til að móta það í samstarfi við Visku. Það er alveg ljóst að þessi þjónusta er komin til að vera fyrir háskólanema og næstu dagar munu fara í að kynna þjónustuna fyrir nemendum HÍ með það að markmiði að sem flestir nýti sér hana,“ segir Karen Lind.
Háskólanemar, sem óska eftir þjónustu vegna kjara- og réttindatengdra mála á vinnumarkaði, geta haft samband við Karen Lind í gegnum netfangið kjarafulltruishi@hi.is. Samhliða kynningu á þjónustunni verður sett á laggirnar vefsíða með efni sem er sérsniðið að þörfum ungs fólks á vinnumarkaði.
„Það er frábært að fá Karen Lind til liðs við okkur í því að fræða háskólanema um kjör og réttindi þeirra á vinnumarkaði. Fyrir okkur hjá Visku er það lykilatriði að fræðslan fari fram á forsendum háskólanema sjálfra og samstarf okkar við SHÍ ásamt ráðningu Karenar, sem er sjálf háskólanemi, tryggir það. Ég hlakka mikið til að fylgjast með þróun verkefnisins og vona að það falli vel í kramið hjá nemendum HÍ. Samstarf okkar við stúdentahreyfinguna á Íslandi heldur áfram með það að markmiði að efla vitund háskólanema um kjör og réttindi á vinnumarkaði,“ segir Gauti Skúlason, verkefnastjóri samskipta- og markaðsmála hjá Visku.