12. ágúst, 2026

Auglýst eftir fulltrúum stúdenta í nefndir háskólaráðs

Kæru stúdentar

Samkvæmt 21. gr. laga Stúdentaráðs skal Stúdentaráð skipa fulltrúa stúdenta í nefndir háskólaráðs. Að þessu sinni er leitað að fulltrúa í málnefnd, ráð um málefni fatlaðs fólks og skipulagsnefnd. Skipunartíminn í ráð um málefni fatlaðs fólks og skipulagsnefnd er til tveggja ára en skipunartíminn í málnefnd til þriggja ára.

Hæfnikröfur eru eftirfarandi:

  • Áhugi á Stúdentaráði og málefnum stúdenta
  • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Virk þátttaka í háskólasamfélaginu er kostur
  • Þekking á stjórnsýslu Háskóla Íslands er kostur

Stúdentaráð mun kjósa um fulltrúa í nefndirnar a fundi ráðsins 25. ágúst. Frekari upplýsingar um starfsemi nefndanna má finna á heimasíðu Háskóla Íslands.

Áhugasöm eru beðin um að senda póst á shi@hi.is fyrir kl. 23:59 þann 22. ágúst næstkomandi. Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynning á umsækjanda, lýsing á áhuga hans á tilteknu nefndarstarfi og reynslu sem hann telur að komi að gagni í nefndinni.

Deila

facebook icon
linkedin icon