21. ágúst, 2024
3. fundur Stúdentaráðs 27. ágúst 2024
Þriðjudaginn 27. ágúst 2024 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu HT-101, Háskólatorgi.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá:
Fundur settur | 17:00 – 17:05 |
Fundargerð skiptafundar þann 21. maí 2024 borin upp til samþykktar | 17:05 – 17:10 |
Fundargerð síðasta fundar 8. ágúst 2024 borin upp til samþykktar | 17:05 – 17:10 |
Drög að fundaskipulagi haustannar | 17:10 – 17:15 |
Lagabreytingatillaga lagaráðs, 1. áfangi | 17:15 – 17:35 |
Tilnefningar í stjórn Stúdentasjóðs | 17:35 – 17:40 |
Fundarhlé | 17:40 – 17:50 |
Tillaga að herferð Stúdentaráðs | 17:40 – 17:55 |
Tillaga um kynhlutlaus salerni | 17:55 – 18:05 |
Tillaga um uppsetningu á rafhleðslustöðvum við Háskóla Íslands | 18:05 – 18:15 |
Tillaga um að Stúdentaráð beiti sér fyrir því að Félagsstofnun stúdenta selji nikótínpúða í Hámu | 18:15 – 18:25 |
Tillaga um að Stúdentaráð krefjist umbóta í almenningssamgöngum | 18:25 – 18:40 |
Fundarhlé | 18:40 – 18:50 |
Tillaga um matarvagna í prófatíð | 18:50 – 19:00 |
Tillaga um vinnustundir skrifstofu | 19:00 – 19:10 |
Tillaga um aukinn fyrirvara í starfi Stúdentaráðs | 19:10 – 19:20 |
Bókfærð mál og tilkynningar | 19:20 – 19:25 |
Önnur mál | 19:30 – 19:35 |