30. april, 2026

Ný forysta Stúdentaráðs kjörin

Í dag 30. apríl var ný skrifstofa Stúdentaráðs Háskóla Íslands kjörin á kjörfundi félagsins. Nýtt ráð mun form­lega taka við á skipta­fundi 29. maí næstkomandi og mun ný skrifstofa taka við keflinu þann 1. júní.

Stúdentaráðskosningar fóru fram þann 26. mars síðastliðinn þar hlaut Röskva, samtök félagshyggju stúd­enta, 11 fulltrúa af 17 stúdentaráðs sér í skaut. Á kjör­fund­in­um hlaut Katla Ólafsdóttir kjör sem for­seti Stúd­entaráðs.

Katla Ólafsdóttir útskrifast frá Háskóla Íslands í vor sem stjórnmálafræðingur áður hefur hún verið oddviti Röskvu í stúdentaráði kjörtímabilið 2024-2025 og hefur því umfangsmikla þekkingu á starfsemi stúdentaráðs.

Einnig hlaut Kjartan Helgi Guðmunfsson kjör sem varaforseti SHÍ en hann leggur stund á iðnaðarverkfræði.

Auður Halla Rögnvaldsdóttir var kjörin hagsmunafulltrúi SHÍ og nemur hún stjórnmálafræði.

Þá var María Björk Stefánsdóttir, fráfarandi oddviti Röskvu, kjörin menntasjóðsfulltrúi SHÍ en hún er nemi í efnaverkfræði.

Deila

facebook icon
linkedin icon