18. september, 2026
Stúdentaráðsfundur 22. september 2026
Þriðjudaginn 22. september kl. 17:30 fer fram stúdentaráðsfundur í stofu N-132 í Öskju.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta og öllum áhugasömum er velkomið að mæta. Ef einhverjar breytingar verða á dagskrá fundarins eða staðsetningu hans má finn a þær á vefsíðu Stúdentaráðs, student.is.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570-0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
1. Fundur settur 17:30-17:35
2. Fundargerð stúdentaráðsfundar 25. ágúst 2026 borin upp til samþykktar 17:35-17:40
3. Heimsókn frá Silju Báru R. Ómarsdóttur rektor 17:40-17:55
4. Tilkynningar og mál á döfinni 17:55-18:10
5. Fjárhagsáætlun Stúdentaráðs 2026-2027 18:10-18:30
6. Framkvæmdaáætlanir nefnda Stúdentaráðs 18:30-18:35
7. Stefna vegna skólagjalda fyrir nemendur utan EES/EFTA-svæðisins 18:35-18:45
8. Fundarhlé 18:45-18:55
9. Tillaga að bættri aðstöðu í VRII 18:55-19:05
Flutningsmaður: Kristrún Ágústsdóttir, stúdentaráðsliði
10. Tillaga að Háskóli Íslands fjölgi námsleiðum sem eru sérsniðnar að fólki með þroskahömlun 19:05-19:15
Flutningsmaður: Andrea Ösp Hanssen, sviðsráðsforseti Félagsvísindasviðs og stúdentaráðsliði
11. Tillaga að Stúdentaráð beiti sér fyrir afsláttarkjörum um allt land fyrir stúdenta við HÍ 19:15-19:25
Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði
12. Tillaga að Stúdentaráð beiti sér fyrir auknu aðgengi að sjúkrakössum og hjartastuðstækjum innan Háskóla Íslands 19:25-19:35
Flutningsmenn: María Fönn Frostadóttir, stúdentaráðsliði, og Auður Ísold Hilmarsdóttir Kjerúlf, varastúdentaráðsliði
13. Tillaga að Stúdentaráð beiti sér fyrir bættum kjörum stúdenta í almenningssamgöngum 19:35-19:45
Flutningsmaður: Einar Jónsson, forseti Umhverfis- og samgöngunefndar SHÍ
14. Tillaga að vannýtt rými innan Háskólans verði að fundaraðstöðu fyrir nemendafélög 19:45-19:55
Flutningsmaður: Anna María Sonde, varastúdentaráðsliði
15. Tillaga um stuðning til stofnunar stórsveitar fyrir stúdenta 19:55-20:05
Flutningsmaður: Valtýr Ferrell, stúdentaráðsliði
16. Tillaga um viðburðadagatal í Uglu til að sporna gegn einmannaleika meðal stúdenta 20:05-20:15
Flutningsmaður: Vera Mist Magnúsdóttir, sviðsráðsforseti Heilbrigðisvísindasviðs og stúdentaráðsliði
17. Lagabreytingatillaga – 3. mgr. 26. gr. samþykkta Stúdentaráðs 20:15-20:25
Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði
18. Bókfærð mál 20:25-20:30
19. Önnur mál 20:30-20:40
20. Fundi slitið 20:40