20. október, 2026
Fulltrúar SHÍ funduðu með Loga Má Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
Þann 7. október fóru Katla Ólafsdóttir, forseti SHÍ, Kjartan Helgi Guðmundsson, varaforseti SHÍ, og Cynthia Anne Namugambe, alþjóðafulltrúi SHÍ, á fund með ráðherra ásamt aðstoðarmanni hans Höllu Jónsdóttir, þar sem rætt var um vanfjármögnun háskólastigsins, skólagjöld fyrir nemendur utan EES og Menntasjóð námsmanna.
Við þökkum Loga Má Einarssyni og Höllu Jónsdóttur fyrir góðan fund og vonumst til þess að stjórnvöld hlusti á stúdenta og tryggi háskólastiginu öflugri fjármögnun, menntasjóð og fyrirsjánleika fyrir alþjóðanema.