Skrifstofa Stúdentaráðs

Hittu réttindaskrifstofu Stúdentaráðs

Á hverju ári kjósa fulltrúar í Stúdentaráði starfsfólk á réttindaskrifstofu ráðsins sem fer með framkvæmdavald þess og sinnir daglegum störfum. Á skrifstofunni starfar fjórir kjörnir fulltrúar; forseti í fullu starfi, varaforseti, hagsmunafulltrúi og lánasjóðsfulltrúi í hlutastarfi. Skrifstofan ræður að auki til sín framkvæmdastjóra, ritstjóra Stúdentablaðsins og alþjóðafulltrúa.

Réttindaskrifstofa Stúdentaráðs vinnur náið saman að bættum hag stúdenta og aðstoðar jafnframt nemendur Háskóla Íslands dagsdaglega við ýmis úrlausnarefni sem tengjast réttindum þeirra gagnvart háskólanum. Öllum stúdentum er velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Hittu ráðið

Arent Orri J. Claessen
Forseti

Forseti hefur yfirumsjón með innra starfi Stúdentaráðs og er málsvari þess út á við - Sími: 7711337

Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Varaforseti

Varaforseti sér um markaðssetningu, nefndir ráðsins og önnur tilfallandi verkefni - Sími: 8523920

Valgerður Laufey Guðmundsdóttir
Hagsmunafulltrúi

Hagsmunafulltrúi er stúdentum innan handar og stendur vörð um hagsmuni þeirra í námi - Sími: 6185494

Júlíus Viggó Ólafsson
Lánasjóðsfulltrúi

Lánasjóðsfulltrúi aðstoðar stúdenta með lánasjóðsmál og situr í stjórn Menntasjóðsins -Sími: 8628365

Daníel Hjörvar Guðmundsson
Framkvæmdastjóri

Framkvæmdastjóri hefur umsjón með daglegum rekstri réttindaskrifstofu Stúdentaráðs - Sími: 8668849

Snæfríður Blær Tindsdóttir
Alþjóðafulltrúi

Alþjóðafulltrúi hefur umsjón með þjónustu réttindaskrifstofu stúdenta við erlenda nemendur

Vésteinn Örn Pétursson
Ritstjóri

Ritstjóri ritstýrir Stúdentablaðinu sem er málgagn allra nemenda við Háskóla Íslands - Sími: 8482323

Stúdentaráðsliðar