Sækja um lán
Lán frá Menntasjóðnum
Stúdentar geta sótt um lán hjá Menntasjóðnum í gegnum ,,Mitt Lán” á heimasíðu Menntasjóðsins (www.menntasjodur.is).
Þar er einnig hægt að fylgjast með stöðu umsókna, skoða lánsáætlun og sjá gátlista yfir gögn sem þurfa að fylgja umsóknum.
Mikilvægt er að sækja um námslán fyrir hvert námsár og þarf að velja allar annir sem námsmaður hyggst stunda nám á.
Umsóknarfrestir á námsárinu 2026-2027 eru eftirfarandi:
Haustönn 2026: Til og með 15. október 2026.
Vorönn 2027: Til og með 15. febrúar 2027.
Sumarönn 2027: Til og með 15. júní 2027.
Athugið að umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur er liðinn verður sjálfkrafa hafnað.
Nánari upplýsingar um námslán má nálgast á heimasíðu Menntasjóðsins.
