Lán frá Menntasjóði námsmanna
Stúdentar geta sótt um lán hjá Menntasjóðnum í gegnum ,,Mitt Lán” á heimasíðu Menntasjóðsins (www.menntasjodur.is).
Þar er einnig hægt að fylgjast með stöðu umsókna, skoða lánsáætlun og sjá gátlista yfir gögn sem þurfa að fylgja umsóknum.
Umsóknarfrestir fyrir skólaárið 2024-2025:
Lán fyrir haustmisseri 2026: til og með 15. október 2026
Lán fyrir vormisseri 2027: til og með 15. febrúar 2027
Lán fyrir sumarmisseri 2027: til og með 15. júní 2027
Útborganir framfærslulána
Greiðsla mánaðarlegra framfærslulána til stúdenta sem óska eftir samtímagreiðslum hefjast á eftirfarandi dagsetningum:
- Á haustönn 2026 hefjast útborganir 1. október 2026
- Á vorönn 2027 hefjast útborganir 1. febrúar 2026
- Á sumarönn 2027 hefjast útborganir í júlí 2026
Greiðsla framfærslulána til stúdenta sem óska eftir að fá lánið greitt eftir hverja önn hefjast að öllu jöfnu um miðjan mánuð á eftirfarandi tímum:
- Fyrir haustönn 2026 hefjast greiðslur í janúar 2027
- Fyrir vorönn 2027 hefjast greiðslur í maí 2027
- Fyrir sumarönn 2027 hefjast greiðslur í ágúst 2027
Útborganir skólagjaldalána
Greiðsla skólagjaldalána til stúdenta sem óska eftir fyrirframgreiðslu hefst að öllu jöfnu um miðjan mánuð á eftirfarandi tímum:
- Fyrir haustönn 2024 hefjast greiðslur í ágúst 2026
- Fyrir vorönn 2025 hefjast greiðslur í janúar 2027
- Fyrir sumarönn 2025 hefjast greiðslur í maí 2027
Hægt er að hafa samband við Menntasjóðinn og óska eftir aðstoð í gegnum heimasíðuna www.menntasjodur.is, í gegnum netfangið menntasjodur@menntasjodur.is eða í gegnum síma +354 560 4000.