

Student.is er samstarfsverkefni meistaranema í blaða og fréttamennsku við Háskóla Íslands, Stúdentaráðs, Félagsstofnunar stúdenta og markaðs- og samskiptasviðs skólans.
Hugmyndina átti Díana Dögg Víglundsdóttir, nemi í blaða- og fréttamennsku. Hennar lokaverkefni var að hanna fréttavef sem nemendur í blaða og fréttamennsku sæu um. Hún lét hins vegar ekki þar við sitja heldur kynnti hugmyndina fyrir verkefnisstjóra námsins og kynningardeild Háskólans og fleirum.
Allir sáu í þessu mikil tækifæri. Annars vegar til að vekja athygli á því fjölmenna samfélagi sem Háskóli Íslands er og hins vegar sem vettvang fyrir verkefni blaða og fréttamennskunema.
Díana Dögg var ráðin til að þróa hugmynd sína áfram og hanna vefinn sem vatt sífellt upp á sig. Æ fleiri aðilar innan skólans sáu sér hag í að koma þar að, stúdentaráð, jafnréttisfulltrúi háskólans, alþjóða skiptinemasamtökin AIESEC, Félagsstofnun stúdenta og fleiri .
Vefurinn varð að nokkurs konar stúdentatorgi, þar sem stúdentar geta fengið upplýsingar um flest sem að skólanum snýr hvort heldur það eru fréttir af því sem þar er að gerast, upplýsingar um matseðilinn í Hámu, hagsmunabaráttuna eða félagslífið.
Stúdent.is er í stöðugri þróun og allar ábendingar um efni hans vel þegnar á efni@hi.is