Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Stúdentakortin

Printer-friendly version

Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt um Stúdentakort í Uglunni.

Leiðbeiningar:
 

  • Farið inn á forsíðu Uglunnar:
  • Smella á "Uglan mín", efst til vinstri
  • Þá opnast um það bil 13 línkar og er neðsti línkurinn þar „Stúdentakort“. 
  • Þá koma upp nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig sækja eigi um kortið.

Stúdentakort eru gefin út í tveimur mismunandi útgáfum. 

Annars vegar auðkennis- og afsláttakort og hins vegar rafrænt aðgangskort.  Auk þess að vera auðkennis- og afsláttakort veitir rafrænt aðgangskort korthafa aukinn aðgang að byggingum Háskólans umfram venjulegan opnunartíma þeirra. 

Stúdentakortið veitir afslátt m.a. í Hámu, veitingasölunni í Háskólatorgi.  Nánari upplýsingar um þá afslætti.

Komi upp vandamál við umsókn um Stúdentakort hafðu samband við Þjónustuborðið Háskólatorgi, haskolatorg@hi.is.  Afgreiðslutími er 8:30–18.

Vinsamlegast athugið að nemendur fá ekki nýtt Stúdentakort árlega heldur er það endurnýjuð með límmiða á Þjónustuborðinu Háskólatorgi.

 

English version:

Student ID card

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni