Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Lánasjóðsaðstoð

Printer-friendly version


Á skrifstofu Stúdentaráðs, Háskólatorgi, er starfandi lánasjóðsfulltrúi sem er boðinn og búinn að liðsinna stúdentum með viðskipti sín við Lánasjóð íslenskra námsmanna. Hvort sem það er aðstoð við umsóknir, samlestur úthlutunarreglna eða úrlausn vafamála sem upp geta komið stendur lánasjóðsfulltrúi vaktina frá 9-17 á þriðju hæð Háskólatorgsins þar sem SHÍ hefur aðsetur.

 

Lánasjóðsdagar

Aukinheldur hefur lánasjóðsfulltrúi veg og vanda af lánasjóðsdögum, sem haldnir eru einu sinni á misseri, í nánu samstarfi við fjármálanefnd SHÍ. Á lánasjóðsdögum er starfsemi LÍN kynnt í þaula og stúdentum veitt aðstoð eftir þörfum hvers og eins á göngum Háskólans. Þessir dagar eru liður í þeirri vegferð Stúdentaráðs að gera einn helsta bakhjarl stúdenta, sem er LÍN, sýnilegri og aðgengilegri. Öruggt fjárhagslegt bakland sem og stöðugar og nægar ráðstöfunartekjur eru tvær af grunnstoðum námsmanns ef sett markmið eiga að nást.

Hlutverk lánasjóðsfulltrúa

Hlutverk lánasjóðsfulltrúans er meðal annars að standa vörð um þessar stoðir, tryggja framtíð þeirra og styrkja eins og kostur er. Stúdentar Háskóla Íslands eru hvattir til innlits og fundar við lánasjóðsfulltrúa og leyfa honum að taka undir lánabyrðarnar sé þess einhver kostur. Lánasjóðsfulltrúi SHÍ skólaárið 2010-2011 er Gabriella Unnur Kristjánsdóttir og senda má henni póst á guk18@hi.is

Úthlutunarreglur 2008-2009 (pdf)

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni