

Háskólatorg hýsir allar miðlægar þjónustustofnanir fyrir nemendur: Þjónustuborðið, Alþjóðaskrifstofu, Félagsstofnun stúdenta, Stúdentaráð, Nemendaskrá, Reiknistofnun og Náms- og starfsráðgjöf. Bóksala stúdenta og veitingastaðurinn Háma eru einnig staðsett á Háskólatorgi ásamt tölvuverum, kennslustofum, lesrýmum, skrifstofum og fundarherbergjum. Á torginu sjálfu eru haldnar ýmsar skemmtilegar uppákomur og þar iðar allt af lífi frá morgni til kvölds.
Þjónustuborð á Háskólatorgi
Á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi er afgreiðsla fyrir allar þjónustueiningarnar sem eru á Háskólatorgi. Þar má m.a. fá ýmis vottorð og yfirlit yfir námsferla og kaupa prentkvóta. Á Þjónustuborðinu skrá nemendur sigá námskeið Náms- og starfsráðgjafar og fá aðgang og lykilorð að Uglunni. Ýmis önnur þjónusta er veitt á Þjónustuborðinu og geti starfsmenn þar ekki afgreitt málið vísa þeir því rétta leið.
Þjónustustofnanir fyrir nemendur og hlutverk þeirra í stuttu máli
Alþjóðaskrifstofa annast skiptinám fyrir nemendur HÍ og ráðgjöf um slíkt, tekur á móti erlendum skiptstúdentum og sinnir öðru alþjóðlegu samstarfi.
Félagsstofnun stúdenta rekur Hámu og Kaffistofur stúdenta, Leikskóla stúdenta, Bóksölu stúdenta, Stúdentagarða og Stúdentamiðlun.
Náms- og starfsráðgjöf veitir ráðgjöf um vinnubrögð í námi, persónulega og sálfræðilega ráðgjöf, úrræði vegna fötlunar og heldur ýmis námskeið, svo fátt eitt sé nefnt.
Nemendaskrá annast skráningu nemenda og heldur utan um námsferla, einkunnir o.fl.
Reiknistofnun Háskóla Íslands er umsjónaraðili tölvukerfa Háskólans, þjónustar nemendur varðandi uppsetningu, nettengingar, tölvupóst o.fl.
Stúdentaráð Háskóla Íslands er hagsmunafélag stúdenta. Nemendur geta snúið sér þangað telji þeir á sér brotið innan skólans. Einnig er veitt ráðgjöf um námslán, réttindi og margt fleira auk þess sem Stúdentaráð á samskipti við öll nemendafélög skólans.