
Nýnemakynningar deilda og fræðasviða
Nám í Háskóla Íslands hefst með svokallaðri nýnemakynningu. Fræðasvið og deildir taka á móti sínum nemendum, kynna kennara og starfsfólk sviðsins, segja frá helstu þjónustu sem stendur nemendum til boða og veita ýmsar gagnlegar upplýsingar sem nemendur þurfa nauðsynlega á að halda. Nemendafélög taka einnig oftast þátt í kynningunni, enda er félagslífið mikilvægur hluti af dvöl í Háskóla Íslands.
Nýnemakynningar hjá deildum og fræðasviðum
Sameiginleg dagskrá fyrir nýnema og Stúdentadagar
Sameiginlegir nýnemadagar Háskóla Íslands verða haldnir dagana 31. ágúst til 4.september í haust. Á nýnemadögunum verður ýmis þjónusta skólans kynnt,boðið verður upp á gönguferðir um háskólasvæðið og nemendur geta kynntsér starfsemi nemendafélaga og annarra stúdentasamtaka. Einnig verðaskemmtiatriði, tónleikar o.fl á Háskólatorgi og víðar. Nýnemadögunum lýkur með Stúdentadögunum,sem Stúdentaráð skipuleggur, en þeir eru 3. og 4. september. Þá keppadeildir sín á milli í ýmsum íþróttum, spurningakeppni o.fl. og ýmislegtannað skemmtilegt verður í boði.
Dagskrá sameiginlegra nýnemadaga
Nýnemar eru hvattir til þess að mæta á sem flesta viðburði nýnemadaga.