- Neyðarnúmer Nýnema er: 570-0870
- Emergency number for International students: 570-0870
- Dagskrá nýnemadaganna
Brynjar Karl Karlsson, nemi á 1. ári í vélaverkfræði: Mjög vel. Þetta er spennandi.
Súsanna Gottsveinsdóttir, nemi á 3. ári í heimsspeki og bókmenntafræði: Rosalega vel.
Örn Erlendsson, nemi á 2. ári í umhverfis- og byggingaverkfræði: Bara rosalega vel.
Kati Temonen, skiptinemi í stjórnmálafræði: Mjög vel, ég er mjög spennt.
Óskar Smárason, nemi á 1. ári í vélaverkfræði: Bara þokkalega.
Sunna Þrastardóttir, nemi á 2. ári í heimsspeki: Bara mjög vel. Líst vel á þetta.

Vits er þörf þeim er víða ratar!
Í upphafi háskólaárs þarf nýneminn að huga að mörgu. Nýtt umhverfi, nýtt skólasamfélag, ný markmið.
Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands (NSHÍ) aðstoðar háskólastúdenta við að færa markmið sín í námi og starfi í framkvæmd. NSHÍ býður upp á fjölbreytta þjónustu, ráðgjöf og upplýsingamiðlun þar sem stefnt er að því að háskólastúdentar öðlist þekkingu, færni og hæfni til að stýra eigin starfsferli og starfsþróun.
Á nýnemadögunum býður NSHÍ upp á tvo örfyrirlestra:
1. september: Námsval og ákvarðanataka kl. 12.00 í Háskólatorgi, st. 300
2. september: Að hefja nám kl. 12.00 í Háskólatorgi, st. 300
Hvetjum við nýnema til að nýta þetta tækifæri og kynnast starfsemi NSHÍ.