Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Kennsluáætlun og bókalistar

Printer-friendly version

Kennsluáætlun hvers námskeiðs fyrir sig birtist í Uglunni. Á kennsluáætlun er einnig oftast að finna þær bækur og greinar sem liggja til grundvallar námsefni námskeiðisins. Í kennsluáætlun kemur einnig yfirleitt fram hvernig námsmati námskeiðisins er háttað, þ.e. hvort það eru próf, verkefni, hvort það er mætingarskylda í áfangann o.s.frv.

Bókalista er einnig hægt að finna á vef Bóksölu stúdenta, boksala.is.

Flestar bækur er hægt að kaupa í Bóksölu stúdenta en einnig er skiptibókamarkaður á Uglunni og á studentamidlun.is þar sem oft má finna bækur á góðu verði. Nýlega var einnig opnaður vefurinn skiptibokamarkadur.is, sem selur notaðar bækur. Einnig eru örfáar deildir sem reka bóksölu fyrir sína nemendur.

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni