
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (Þjóðarbókhlaðan)
Nemendur Háskóla Íslands hafa aðgang að fullkomnasta bókasafni landsins í Þjóðarbókhlöðunni. Nemendur HÍ fá bókasafnsskírteini án endurgjalds og hafa m.a. aðgang að rafrænum gagnasöfnum sem eru í eigu og áskrift safsins og öllum lokaritgerðum nemenda Háskólans.
Á safninu er einnig upplýsingaþjónusta, notendaþjónusta og ljósritunaðastaða. Í Þjóðarbókhlöðu eru um 400 sæti við borð, auk fjölmargra sæta við tölvur, lesvélar og í tón- og mynddeild.
Í húsnæði Menntavísindasviðs er veglegt bókasafn fyrir nemendur sviðsins. Minni og sérhæfðari bókasöfn eru víða um háskólasvæðið.
Vefur Landsbókasafnsins
Vefur bókasafns á Menntavísindasviði