Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands

Stúdent.is

Ætlar þú að taka hlut af námi þínu erlendis?

Spurning vikunnar Edda María Sveinsdóttir, 1. ári í lögfræði: Já, ég hef áhuga á að taka skiptiönn úti í meistaranáminu. Þá helst í Bandaríkjunum eða S-Evrópu.
Spurning vikunnar Védís Eva Guðmundsdóttir, 1. ári í lögfræði: Já, ég hef áhuga á að fara til Noregs eða Bandaríkjanna.
Spurning vikunnar Sigurður Freyr Ástþórsson, 1. ári í sagnfræði: Mig langar að fara til Bretlands eða Noregs ef gengið lagast.


Printer-friendly version

Alþjóðlegur skóli

Stefna Háskóla Íslands í alþjóðasamskiptum felst m.a. í því að leitast við að gera nemendum kleift að stunda hluta af námi sínu erlendis. Allir sem vettlingi geta valdið ættu því að stefna að því einhvern tíma í námi sínu við HÍ að takast ferð á hendur og fara í skiptinám.

Skiptinám gefur nemendum kost á að kynnast nýju landi, menningu, tungumáli og fólki. Kynni nemenda af öðru landi en heimalandi sínu gerir þá færari um að lagast að margvíslegum aðstæðum og hæfari til þess að eiga samskipti við fólk með ólíkan menningarbakgrunn.

Alþjóðaskrifstofan veitir þeim þjónustu sem hyggjast fara í skiptinám og tekur við umsóknum. Ennfremur starfrækir Alþjóðaskrifstofan Upplýsingastofu um nám erlendis. Þangað geta allir leitað sem vilja fara í nám erlendis, hvort sem er í skiptinám eða í fullt nám á eigin vegum.

Alþjóðaskrifstofan er á Háskólatorgi 3. hæð og er opin frá 10-12 og 12:30-16 alla virka daga.

Vefur Alþjóðaskrifstofu

 

Viðburðir

« Mars 2010 »
SMÞMFFL
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031