Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Algengar spurningar

Stúdent.is

Hvað ætlar þú að gera í páskafríinu?

Spurning vikunnar Sandra Rún Sigurðardóttir, 3. ár í frönsku og hugvísindi: Ég ætla slappa af með fjöldskylduna og skrifa BA ritgerðirnar.
Spurning vikunnar Una Guðlaug Sveinsdóttir, 4. ár í ensku og frönsku: Ég ætla vinna að BA ritgerðirnar og borða páskaegg.
Spurning vikunnar Anders Svensson, í lögfræði: Ég ætla fara á Aldrei Fór Ég Suður.


Printer-friendly version

Hvað er grunnnám?

Grunnnám er fyrsta háskólagráða og tekur yfirleitt þrjú ár að klára. Einhverjar námsleiðir eru þó með lengra grunnnám. Grunnnám veitir aðgang í framhaldsnám á háskólastigi. Grunnnámi lýkur með BA, BS eða B.Ed. gráðu.

Hvað er framhaldsnám?

Framhaldsnám getur verið af ýmsum toga. Meistaranám, yfirleitt tveggja ára, kemur oft í kjölfarið af grunnnámi og lýkur með MA, MS eða M.Ed. gráðu. Doktorsnám er minnst þrjú ár. Einnig eru í boði ýmsar styttri námsleiðir á framhaldsstigi og þeim lýkur oft með diplómagráðu.

Hvernig finn ég þá stofu sem ég á að mæta í?

Byggingar skólans eru margar og bera allar nafn og einkennistaf, en sá stafur kemur fram á stundatöflunni. Ef á stundatöflunni stendur O 201 þá er kennslustundin í stofu 201 í Odda. Byggingar skólans eru merktar á eftirfarandi hátt:

  • Aðalbygging - A
  • Askja - N
  • Árnagarður - Á
  • Eirberg - EIR
  • Hagi - Ha
  • Háskólabíó - H
  • Háskólatorg - HT
  • Gimli - G
  • Læknagarður - Lg
  • Lögberg - L
  • Neshagi - Nh
  • Nýi garður - Ng
  • Oddi - O
  • Stakkahlíð, Enni - E
  • Stakkahlíð, Hamar - H
  • Stakkahlíð, Klettur - K
  • Stapi
  • VR I
  • VR II
  • VR III

Yfirlit yfir allar byggingar skólans.

 

Viðburðir

« Mars 2010 »
SMÞMFFL
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031