
Kennsluskrá Háskóla Íslands
Kennsluskrá Háskóla Íslands er stúdentum afar mikilvæg. Kennsluskrána er að finna á ugla.hi.is/kennsluskra. Í henni eru ítarlegar upplýsingar um námsleiðir og námskeið.
Í Kennsluskránni eru jafnframt upplýsingar um stjórn Háskólans, fræðasvið og deildir, skólaárið, skráningu, gjöld, próf og margt fleira sem nemendur þurfa að vita þegar þeir hefja nám við skólann.
Kennslualmanak og mikilvægar dagsetningar
Í kennslualmanaki Háskóla Íslands er að finna ýmsar mikilvægar dagsetningar sem nemendur þurfa að hafa á hreinu. T.d. hvenær skráningu í námskeið lýkur, hvenær úrskráningarfrestur rennur út o.fl.
Kennslualmanakið á vefnum