Fréttatilkynning frá Grimmhildi, félagi H-nemenda (e. mature students) á Hugvísindasviði við Háskóla Íslands
Nemendafélagið Grimmhildur, félag H-nemenda (e. mature students) á Hugvísindasviði er nýstofnað nemendafélag við Háskóla Íslands. Til H-nemenda teljast þeir sem hafa hafið nám á ný eftir hlé eða hafa kosið að skipta um starfsvettvang og leita sér því nýrrar menntunar. Aðrir nemendur sem falla einnig undir skilgreininguna H-nemendur eru til dæmis þeir sem bera fjölskylduábyrgð eða sjá sjálfum sér farborða. Stuðningur, samstaða og samvinna annarra nemenda í svipaðri stöðu er gríðarlega mikilvægt atriði í námi og félagslífi H-nemenda við HÍ. Hópurinn hefur farið ört vaxandi á undanförnum árum og því var ráðist í stofnun formlegs nemendafélags. Nafn félagsins er Grimmhildur, félag H-nemenda á Hugvísindasviði við HÍ. Bókstafurinn H í nafni félagsins getur táknað ýmislegt til dæmis: hlé, hugrekki, hugvísindasvið, eða hvað það sem viðkomandi félagsmaður kýs sér. Félagsaðild stendur öllum nemendum Háskóla Íslands til boða.
Þrátt fyrir stóran hóp H-nemenda í Háskóla Íslands hefur hann ekki verið skilgreindur eins og algengt er í erlendum háskólum. Það er fyrst núna með brautryðjendastarfi Grimmhildar að H-nemendur eru orðnir sýnilegir. Markmið Grimmhildar er gefa þessum hópi rödd í háskólasamfélaginu. Tilgangur félagsins er að skapa félagsmönnum vettvang þar sem þeir geta sinnt sameiginlegum hagsmunamálum, áhugamálum og fræðastarfi. Á dagskrá félagsins er líflegt félagsstarf þar sem menningarviðburðir munu skipa stóran sess. Félagið mun efna til funda og fyrirlestra um ýmis málefni tengd námi eða áhugamálum félagsmanna. Varðveisla sögu- og menningarminja er að auki eitt helsta hjartans mál Grimmhildar. Félagið mun annast útgáfustarfsemi með rafrænum hætti á heimasíðu sinni þar sem ýmiss konar lista- og menningarviðburðir verða einnig auglýstir.
Í byrjun haustannar mun Grimmhildur bjóða nýnemum og öðrum nemum HÍ að koma á kynningarfund félagsins þar sem félagsmenn munu tala af eigin reynslu um hvernig það var að stíga út úr þægindarammanum og hefja háskólanám að nýju. Fundurinn verður auglýstur síðar á vefsíðu og fb-síðu Grimmhildar.
Slóð vefsíðu Grimmhildar er http://nemendafelog.hi.is/grimmhildur
Netfang félagsins er grimmhildur@hi.is
Facebook félagsins nefnist Grimmhildur, félag H-nemenda á hugvísindasviði við HÍ
Allir nemendur innritaðir í Háskóla Íslands geta orðið félagar í Grimmhildi og er áhugasömum bent á að hafa samband við félagið á netfangi þess grimmhildur@hi.is.

