Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt um Stúdentakort í Uglunni.
Leiðbeiningar:
- Farið inn á forsíðu Uglunnar:
- Smella á "Uglan mín", efst til vinstri
- Þá opnast um það bil 13 linkar og er neðsti línkurinn þar „Stúdentakort“.
- Þá koma upp nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig sækja eigi um kortið.
Tvær mismunandi útgáfur
Stúdentakort eru gefin úr í tveimur mismunandi útgáfum. Annars vegar auðkennis- og afsláttakort og hins vegar rafrænt aðgangskort. Auk þess að vera auðkennis- og afsláttakort veitir rafrænt aðgangskort korthafa aukinn aðgang að byggingum Háskólans umfram venjulegan opnunartíma þeirra.
Komi upp vandamál við umsókn um Stúdentakort hafðu samband við Þjónustuborðið Háskólatorgi, haskolatorg@hi.is. Afgreiðslutími er 8:30–18 mánudaga til fimmtudaga, en frá 8:30-16 á föstudögum.
Vinsamlegast athugið að nemendur fá ekki nýtt Stúdentakort árlega heldur er það endurnýjuð með límmiða á Þjónustuborðinu Háskólatorgi.
Afslættir Stúdentakortsins
Korthafar fá afslætti á hinum ýmsu stöðum og eru þeir listaðir hér að neðan.
Tölvur, tölvubúnaður og prentun

Guðjón Ó prentsmiðja veitir stúdentum bestu fáanlegu kjör á öllu prenti.
Nýherji í Borgartúni veitir handhöfum Stúdentakortsins 10% afslátt af listaverði sínu.
Oddi veitir 10% afslátt af öllum vörum og þjónustu sem í boði er. Sem dæmi má nefna prentun á lokaverkefnum, plakötum, skólablöðum og bæklingum.
Prentvörur veita 10% afslátt af endurgerðum og samhæfðum prenthylkjum. Afslátturinn nær einnig yfir ritföng.
Start tölvuverslun býður 15% afslátt af vinnu við tölvuviðgerðir.
Tölvur og gögn ehf. veita 10% afslátt af vinnu og 5% afslátt af tölvum og tölvubúnaði.
Ýmis breytileg sértilboð til stúdenta, aðgengileg á www.tolvutek.is/skolatilbod hverju sinni.
Líkamsrækt, heilsa og snyrting
Aðgangur í Bláa lónið á 1.600 kr. frá 1. september til 31. maí gegn framvísun Stúdentakortsins.
Korthafar fá 15% afslátt af öllum kortum Boot Camp.

CrossFit Stöðin, Rafstöðvarvegi 9, veitir korthöfum 15% afslátt af öllum kortum. Þá er einnig í boði 4 vikna grunnnámskeið í CrossFit á 15.000 kr. á eftirfarandi tímum; mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 7:20 eða 11:30 og þriðjudögum og fimmtudögum kl.6:20 og laugardögum kl.10:00
Einnig er í boði 4 vikna grunnnámskeið í CrossFit og 8 vikna framhaldsnámskeið á 29.500 kr. á eftirfarandi tímum; mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl.7:20 eða 11:30 og þriðjudögum, fimmtudögum kl.6:20 og laugardögum kl.10:00.

Dansskóli Jóns Péturs og Köru býður korthöfum 25% afslátt af öllum dansnámskeiðum á haustönn 2012. Afslátturinn gildir einnig yfir smærri og sérsniðna hópa. Námskeið og stundaskrá má sjá á heimasíðu skólans.
Handhafar Stúdentakortsins fá 10% afslátt af námskeiðum hjá Fullfrísk.
Hársmiðjan veitir 10% afslátt af vörum og þjónustu gegn framvísun Stúdentakortsins.
Heilsuborg býður korthöfum 20% afslátt af líkamsræktarkortum. Gildir ekki af námskeiðum né tilboðskortum.
Hress býður 6 mánaða skólakort á 35.990 kr. og 12 mánaða skólakort á 46.990 kr. Þá er Vinaklúbbur Hress á 4.290 kr. á mánuði og binditíminn eru 12 mánuðir.
Korthafar fá 10% afslátt af öllum vörum og þjónustu hjá hárgreiðslustofunni Kúltúru.
Kramhúsið veitir korthöfum 15% afslátt af námskeiðum.
JSB býður 4ra mánaða kort á 15.000 kr. og 9 mánaða kort á 31.500 kr. gegn staðgreiðslu. Staðgreiðslutilboðið gildir fyrir 25 ára og yngri. Þá er í boði 9 mánaða áskriftarkort á 4.500 kr. á mánuði og 4ra mánaða áskriftarkort á 4.750 kr. á mánuði.
Snyrti- og nuddstofan Paradís veitir 15% staðgreiðsluafslátt af allri snyrtingu gegn framvísun Stúdentakorts. Þá má nálgast mánðarleg tilboð á www.pardis.is.
Pole Sport veitir 17% afslátt af námskeiðum og 10% afslátt af vörum sínum gegn framvísun Stúdentakortsins.
Skólakort World Class býðst með 20% afslætti skólaárið 2012/2013. Þá er árskort með boðgreiðslusamningi á 5.440 kr. á mánuði, staðgreitt árskort á 58.600 kr., 9 mánaða kort á verði 6 mánaða korts eða á 49.990 kr. og 3 mánaða kort á 20% afslætti eða á 23.200 kr.
Yoga Shala býður stúdentum 15% afslátt í yoga gegn framvísun Stúdentakortsins.
Fatnaður
Dansbúðin í Dansskóla Jóns Péturs og Köru býður korthöfum 10% afslátt af dansskóm. Gott úrval er af dansskóm bæði fyrir börn og fullorðna.
Handhafar Stúdentakortsins fá 10% afslátt af öllum vörum í Dorothy Perkins.
Dúkkuhúsið veitir 10% afsláttur gegn framvísun Stúdentakortsins.
Gyllti kötturinn veitir 15% afslátt af vörum sínum gegn framvísun Stúdentakortsins.
Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar veitir 15% afslátt af vörum sínum gegn framvísun Stúdentakortsins.
Handhafar Stúdentakortsins fá 10% afslátt af öllum vörum í Topshop.
Handhafar Stúdentakortsins fá 10% afslátt af öllum vörum í Warehouse.
Matur og drykkur
Korthafar fá rétt dagsins á 650 kr. í stað 800 kr. og súpu dagsins á 300 kr. í stað 400 kr. í Hámu. Þá fá korthafar 20 kaffibolla kaffikort á 1.500 kr., þ.e. bollann á 75 kr.
Björnsbakarí veitir 15% afslátt gegn framvísun Stúdentakortsins.
Café Paris veitir 15% afslátt gegn framvísun Stúdentakortsins.
Veitingarstaðurinn Frú Sigríður í Hafnarhúsinu býður 15% afslátt af öllum réttum gegn framvísun Stúdentakortsins.
Gamla Smiðjan veitir 15% afslátt gegn framvísun Stúdentakortsins.
Gandhi veitir 10% afslátt gegn framvísun Stúdentakortsins.
Grænn kostur veitir 10% afslátt af öllum sínum vörum gegn framvísun Stúdentkortsins.
Hagavagninn býður korthöfum hamborgara, franskar og gos á 850 kr.
Hamborgarabúllan veitir 15% afslátt gegn framvísun Stúdentakortsins.
Hamborgarafabrikkan veitir 10% afslátt af hamborgurum af matseðli fyrir kl.17:00 á daginn fyrir handhafa Stúdentakortsins.
Viking Classic og Viking Lager á krana á 500 kr. hjá Hemma og Valda, alla daga frá kl. 12 - 22 og frá kl. 12 - 24 á föstudögum.
Kaffi Zimsen býður stúdentum eftirfarandi tilboð: Stór bjór 350 kr., skot 550 kr., einfaldur í gos 790 kr., einafaldur í orku 890 kr. og léttvín (lítil flaska) 650 kr. á föstudögum milli kl.19:00 - 24:00. Alla daga vikunnar milli kl.17:00 - 22:00 er 2fyrir1 af bjór. Þá fæst 10 bjóra bjórkort á 6.000 kr.
2fyrir1 af öllum máltíðum frá sunnudegi til þriðjudags á Lebowski bar. Einnig er 2fyrir1 af bjór og léttvíni alla daga vikunnar frá kl.16:00 - 19:00.
Mezzo veitir 15% afslátt af vörum sínum gegn framvísun Stúdentakortsins.
Noodle Sation veitir korthöfum 10% afslátt frá september til desember 2012.
Pisa veitingahús veita 25% afslátt af matseðli frá sunnudag til miðvikudags og 15% afslátt frá fimmtudegi til laugardags.
Roadhouse veitir korthöfum 15% afslátt af matseðli. Tilboðið gildir ekki með öðrum tilboðum.
Rizzo Pizza veitir 20% afslátt gegn framvísun Stúdentakortsins.
Saffran veitir stúdentum 10% afslátt gegn framvísun Stúdentakorts.
Sbarro veitir 10% afslátt gegn framvísun Stúdentakortsins. Gildir ekki af tilboðum.
Sjávarbarinn veitir 15% afslátt af mat og drykk gegn framvísun Stúdentakortsins.
Skrúður og Mímisbar á Hótel Sögu veita korthöfum 10% afslátt. Gildir ekki með öðrum tilboðum s.s. happy hour o.s.frv.
Soya Makibar veitir 20% afslátt gegn framvísun Stúdentakortsins.
10% afsláttur af öllum veitingum á Spírunni gegn framvísun Stúdentakortsins. Afslátturinn gildir ekki af drykkjum.
Subway veitir 10% afslátt gegn framvísun Stúdentakortsins.
Super Sub veitir 15% afslátt af tilboðum og 20% afslátt af matseðli sínum.
Sushismiðjan veitir 10% afslátt af matseðli sínum gegn framvísun Stúdentakortsins.
Tapas barinn veitir korthöfum 20% afslátt af mat, frá sunnudegi til fimmtudags. Gildir ekki með tilboðum eða af drykkjum og einungis fyrir eiganda kortsins.
Tapashúsið veitir 15% afslátt af mat á virkum dögum og í hádeginu á meðan hádegisopnum er.
Texasborgarar veita korthöfum 15% afslátt af mat og drykk.
Afþreying
15% afsláttur í Adrenalíngarðinn gegn framvísun Stúdentakortsins.
Artic Rafting og Artic Adventures bjóða korthöfum 30% afslátt í river rafting ef bókað er á netinu. Þá fá korthafar 15% afslátt í snorkling á sumrin (frá 15. maí - 15. september) en í vetur hækkar sá afsláttur upp í 30% (frá 16. september - 14. maí).
Bakkaflöt veitir 10% afslátt í river rafting í Vestari og Austari Jökulsá.
Elding hvalaskoðun veitir 10% afslátt í ferðir sínar.
Go-Kart Höllin veitir 10% afslátt af öllum tegundum af akstri sem í boði er.
Skemmtigarðurinn í Grafarvogi veitir korthöfum 15% afslátt af listaverði. Gildir ekki með öðrum tilboðum.
Top Reiter veitir 10% afslátt af öllum vörum nema skeifum, fóðri og hnökkum. Hjá Top Reiter er að finna flest allt sem þarf til hestamennskunar.
Annað
Sjónlag augnlæknastöð býður nemendum HÍ upp á kr. 45.000 afslátt af LASIK aðgerðum og kostar aðgerðin frá kr. 250.000. Sjónlag augnlæknastöð var stofnuð árið 2001 og er í fararbroddi hér á landi hvað varðar tæknibúnað og þjónustu við sjúklinga. Við erum með nýjustu tækin og bjóðum ein fyrirtækja upp á hníflausa laseraðgerðir. Hringdu í síma 577 1001 og pantaðu tíma í forskoðun.
Augljós býður stúdentum upp á 30.000 kr. afslátt af LASIK-sjónlagsaðgerðum og kostar aðgerðin þá 250.000 kr. í stað 280.000 kr. Hjá Augljósi er nýtt lasertæki og starfandi sérfræðingur í laseraðgerðum. Augljós er staðsett í Vesturhúsi Glæsibæjar, 2. hæð.
Efnalaugin Björg í Mjódd veitir 20% afslátt við staðgreiðslu.
Gleraugnabúðin í Mjódd býður háskólanemum 20% afslátt af gleraugum; Silhouette, Michael Kors, Calvin Klein, Nike, Etnia Barcelona, Jil Sander og Valentino.
Handhafar Stúdentakortsins fá hraðlestrarnámskeið á 28.500 kr. eða með 4.000 kr. afslætti.
10% afsláttur í Iðu af öllu nema útsöluvörum. Afslátturinn gildir bæði í bókabúð Iðu við Lækjargötu og á bókakaffinu við Vesturgötu.
15% afsláttur af FedEx gjaldskránni, hvort heldur sem er útflutningur eða innflutningur.
PLUSMINUS OPTIC veitir 15% afslátt af öllu nema linsum. Það er 15% afsláttur af gleraugnaumgjörðum, sjónglerjum, sólgleraugum, sportgleraugum, linsuvökvum, smávöru og allri þjónustu.







