Stúdentaráð rekur skrifstofu á þriðju hæð Háskólatorgs (beint fyrir ofan Bóksöluna). Allir stúdentar eru velkomnir á skrifstofuna með ábendingar, fyrirspurnir eða skemmtilegt spjall. Skrifstofan er opin alla virka daga frá 8-16.
Skrifstofa Stúdentaráðs
Háskólatorg (3. hæð)
s. 570-0850
Starfsárið 2012-2013 hafa fimm starfsmenn aðsetur á skrifstofu SHÍ:
Formaður Stúdentaráðs
Formaður Stúdentaráðs stýrir störfum ráðsins, sinnir ýmsum störfum á vegum þess og heldur utan um helstu verkefni. Formaður kemur fram fyrir hönd Stúdentaráðs í samskiptum við aðila innan sem utan Háskóla Íslands. Formaður Stúdentaráðs er í fullu starfi á skrifstofu Stúdentaráðs.
Sara Sigurðardóttir
570 0852 / 849 4794
Hagsmuna- og lánasjóðsfulltrúi
Hagsmuna- og lánasjóðsfulltrúi er helsta hjálparhella allra stúdenta. Hlutverk hans er að hafa allt á hreinu er viðkemur réttindum og stöðu stúdenta innan háskólans og að geta svarað spurning og aðstoðað við vandamál tengd Lánasjóði íslenskra námsmanna. Ef eitthvað bjátar á í námi eða öðru tengdu skólanum þá geta allir stúdentar ávallt leitað til hagsmuna- og lánasjóðsfulltrúa á skrifstofu Stúdentaráðs.
Davíð Ingi Magnússon
570 0853 / 869 8588
Varaformaður Stúdentaráðs
Varaformaður Stúdentaráðs er heldur utan um markaðs- og kynningamál ráðsins og gætir þess að allar upplýsingar komist áleiðis til stúdenta háskólans. Varaformaður hefur ekki fasta viðveru á skrifstofu Stúdentaráðs þó oft megi finna hann þar. Ef ekki má hafa samband við hann símleiðis eða með tölvupóst.
Jón Atli Hermannsson
570 0850 / 893 2055
Framkvæmdastjóri Stúdentaráðs
Framkvæmdastjóri Stúdentaráðs hefur umsjón með daglegum rekstri skrifstofu Stúdentaráðs. Þá er framkvæmdastjóri ábyrgur fyrir helstu viðburðum á vegum ráðsins.
Sólrún Halldóra Þrastardóttir
570 0856 / 823 4267
Ritstjóri Stúdentablaðsins
Ritstjóri Stúdentablaðsins sér um ritstýringu og útgáfu blaðsins.
Guðrún Sóley Gestsdóttir
663 5723
